Skipuleggðu viðburðinn með Melda
Búðu til viðburði, haltu utan um gestalistann, sendu boðskort og fleira — allt á einum stað.
Byrjaðu ókeypisDrykkjartoppar
Matargerð og stíll
Um þjónustuna
Við bjóðum uppá drykkjartoppa sem eru að ryðja sér til rúms á viðburðum um allan heim. Drykkjartopparnir eru þunnar, ætanlegar skífur sem liggja ofan á drykkjum og gera hvern kokteil, mocktail eða glas að hluta af upplifuninni. Hvað eru drykkjartoppar? Drykkjartoppar eru prentaðar á pappír, sem er búinn til úr kartöflusterkju, sem er: örþunnur bragð- og lyktarlaus leysist upp í munni algjörlega öruggur til neyslu Skífan er lögð varlega ofan á froðukenndan drykk (t.d. espresso martini) eða sett á glasbrún með klemmu. Stærð | Þvermál | Hentar best fyrir XS | 3,8 cm | Lítil glös, kampavínsglös (fest á hlið með klemmu) S | 5,1 cm | Einföld lógó, cocktail- og highballglös með skreytingu M | 6,4 cm | Martíniglös (vinsælasta stærðin) L | 7,6 cm | Martíni- og coupeglös (fyrir áberandi útlit)
Reels og stuttmyndir
@prentari.is Drykkjartoppar eru skemmtileg viðbót við öll tilefni. 1. Unnið úr kartöflusterkju sem fellur til við framleiðslu snakks. 2. Bragð- og lyktarlaust. 3. Fyrir hvaða drykki sem er. Kíktu inn á www.prentari.is fyrir nánari upplýsingar. #prentari #wow #veisla #afmæli #40 ♬ upprunalegt hljóð - prentari.is
Mataróskir
Tungumál
Athugasemdir
Hvernig eru topparnir notaðir? Besti árangur næst þegar toppurinn er: lagður á froðu (t.d. espresso martini, sour, mocktail) eða settur á glasbrún með klemmu Skífan liggur létt ofan á drykknum og helst þar í dágóðan tíma áður en hún leysist smám saman upp. Sérhönnun fyrir hvern viðskiptavin Allir drykkjartopparnir eru: sérhannaðir eftir óskum viðskiptavinar prentaðir eftir pöntun framleiddir á Íslandi Þú getur útfært þína toppa eftir þínu höfði, sem dæmi: texta nöfn dagsetningar einföld lógó tákn eða grafík Þetta gerir vöruna fullkomna fyrir: veislur markaðssetningu vörumerkjaupplifun Af hverju að velja drykkjartoppa? Nýjung sem fæst ekki annars staðar á Íslandi Sameinar hönnun, upplifun og mat Skapar eftirminnileg augnablik á myndum og í raunheimi Hentar jafnt einkaaðilum og fyrirtækjum
Þjónustan er í boði um allt Ísland.