Skipuleggðu viðburðinn með Melda
Búðu til viðburði, haltu utan um gestalistann, sendu boðskort og fleira — allt á einum stað.
Byrjaðu ókeypisFröken Selfoss – Veisluþjónusta
Matargerð og stíll
Um þjónustuna
Fröken Selfoss – Veisluþjónusta Kíktu á vefsíðuna okkar til að fá heildstæða útlistun á upplifunum, matseðlum, verðlagningu og þjónustu sem við bjóðum uppá! Við erum rótgróinn veitingastaður og alhliða veisluþjónusta með víðtæka reynslu af skipulagningu og framkvæmd viðburða af öllum stærðum. Frá litlum, persónulegum upplifunum yfir í stórar ráðstefnur og móttökur – við sjáum um heildina, ekki bara matinn. Markmið okkar er einfalt: að gera viðburðinn þinn hnökralausan, faglegan og eftirminnilegan. Við vinnum með skýru ferli þar sem matur, þjónusta, tímasetningar og framkvæmd spila saman í einni samfelldri lausn. Viðskiptavinir okkar þurfa ekki að púsla saman mörgum aðilum – við tökum ábyrgð á heildinni, eða vinnum með þér að þeirri lausn sem vantar. Við bjóðum upp á sérsniðnar lausnir fyrir meðal annars: - Private chef upplifanir, frá 2-20 manns - Fermingar, útskriftir og erfidrykkjur - Brúðkaup, afmæli og fjölskylduveislur - Fyrirtækjaviðburði, starfsmannaveislur og móttökur - Ráðstefnur og stóra viðburði – allt að 1.000 manns - Hvort sem um er að ræða samsetta máltíð, hlaðborð, smárétti, eða fulla þjónustu með bar og starfsfólki, aðlögum við lausnina að tilefninu, rýminu og gestunum. Við störfum bæði: - í okkar eigin húsnæði - í samstarfi við fjölda sala og veislurýma - í lúxuslodge og villum - og á staðnum hjá viðskiptavinum, hvar sem er á Suðurlandi og víðar Við komum með allt sem þarf: mat, búnað, starfsfólk og skipulag. Við erum vön krefjandi aðstæðum, tímaskorti og sérlausnum – og vinnum alltaf með öryggi og fagmennsku að leiðarljósi. Fröken Selfoss – fullbúin lausn fyrir dagveislur Fyrir dagveislur á borð við fermingar, útskriftir og erfidrykkjur er Fröken Selfoss sérstaklega hentugur kostur. Þar er: - Veislusalur - Fagleg þjónusta - og veislumatur allt innifalið í verði, svo lengi sem salurinn er laus frá kl. 17:30 fyrir kvöldþjónustu. Þetta einfaldar skipulagið verulega og tryggir fyrirsjáanleika í kostnaði og framkvæmd. Foodtruck, útisvæði og hreyfanlegar lausnir Auk hefðbundinnar veisluþjónustu bjóðum við upp á hreyfanlegar lausnir sem henta sérstaklega vel fyrir óformlegri viðburði, sumarveislur og útisamkomur. Við ráðum yfir: - foodtruck - ferðabar og grilllausnum - tjöldum, hiturum og búnaði fyrir útiveislur - Groovís-vagni með ís, kleinuhringjum og sælgæti fyrir fjölskyldu- og barnamiðaða viðburði - Allan borðbúnað Þetta gerir okkur kleift að þjónusta viðburði þar sem hefðbundin aðstaða er ekki til staðar – án þess að fórna gæðum eða upplifun. Reynslan skiptir máli Við erum þjónustuaðili fyrir fjölmörg lúxuslodge, villur og fyrirtæki á Suðurlandi og erum vön kröfuhörðum verkefnum þar sem smáatriðin skipta sköpum. Engir tveir viðburðir eru eins. Styrkur okkar liggur í: - skýru skipulagi - sveigjanleika - og faglegri framsetningu frá upphafi til enda Við tökum ábyrgð, höfum yfirsýn og vinnum hlutina rétt.
Fröken Selfoss veisluþjónusta Provider
Mataróskir
- Vegan valkostir
- Grænmetis valkostir
- Glútenfrítt
Bar og drykkir
- Vínveitingaleyfi
- Kokteilar
- Óáfengir kokteilar
- Vínpörun
Flutningar
- Keyrir í vetrarveðri
Umsagnir
Engar umsagnir enn
Vertu fyrst/ur til að deila reynslu þinni og hjálpa öðrum að taka betri ákvarðanir.
Fröken Selfoss veisluþjónusta Provider