Skipuleggðu viðburðinn með Melda
Búðu til viðburði, haltu utan um gestalistann, sendu boðskort og fleira — allt á einum stað.
Byrjaðu ókeypisFröken Selfoss – Salur
Brúarstræti 6, 800 Selfoss, Ísland
Um salinn
Fröken Selfoss – Veislusalur fyrir dagveislur og fundi allt árið. Hægt að gera samkomulag um brúðkaup og stærri veislur uppí frá 70-90 manns með 6 mánaða fyrirvara. Fröken Selfoss býður upp á einstaklega fallegan og hlýlegan veislusal sem hentar vel fyrir dagveislur á borð við fermingar, útskriftir og erfidrykkjur allt að 90 manns, auk þess að vera góður kostur fyrir fundi, kynningar og samkomur allt að 40 manns. Salurinn er staðsettur í miðbæ Selfoss og sameinar notalegt andrúmsloft, faglega þjónustu og þægilegt skipulag. Við rukkum almennt enga ekki salaleigu. Salurinn er innifalinn í verði veislumatseðla, sem gerir þetta að afar hagkvæmum og einföldum kosti fyrir gestgjafa. Þetta gildir svo lengi sem salurinn er laus fyrir kl. 17:30, þegar veitingastaðurinn þarf að vera til reiðu fyrir kvöldverðargesti. Salurinn hentar vel fyrir fundi og dagskrár þar sem þörf er á tækni og sveigjanlegri uppsetningu. Við getum sett upp skjávarpa, skjá og míkrafón, auk þess sem mögulegt er að setja upp tjald utandyra í tengslum við viðburði, allt eftir aðstæðum og árstíma. Boðið er upp á úrval veislumatseðla og faglega þjónustu, þar sem salur, matur og framkvæmd eru hugsuð sem ein heild. Fyrir nánari upplýsingar um fyrirkomulag, matseðla og þjónustu er best að skoða vefsíðu okkar, þar sem finna má yfirgripsmikla yfirsýn yfir alla þá möguleika sem í boði eru. Auk eigin salar er Fröken Selfoss í samstarfi við fjölda sala og veislurýma á Suðurlandi. Með því að bóka viðburði í gegnum okkur njóta viðskiptavinir oft sérkjara á sölum, sem getur lækkað heildarkostnað og einfaldað skipulag viðburðarins. Hentar sérstaklega vel fyrir: - Fermingar - Útskriftir - Erfidrykkjur - Fundi, kynningar og fyrirlestra - Aðrar dagveislur með veitingum
Fröken Selfoss veisluþjónusta Provider
Helstu kostir
Veitingar og drykkir
Aðstaða
Búnaður
Aðgengi
Auka eiginleikar
Staðsetning
Bílastæða hús Miðbær Selfoss. Veitingastaðurinn blasir við leið og komið er inná miðbæjartorgið af neðra bílastæðinu, frábært aðgengi. Virkir dagar (Weekdays) • 8:00-17:00 > Frítt fyrstu 2 klst. > 550 kr. á klukkustund eftir það. • 17:00 – 08:00 Frítt fyrstu 2 klst. > 250 kr. á klukkustund eftir það. Helgar (Weekends) • Frítt fyrstu 2 klst. >250 kr. á klukkustund eftir það.
Allar myndir
Fröken Selfoss veisluþjónusta Provider