
Skipuleggðu viðburðinn með Melda
Búðu til viðburði, haltu utan um gestalistann, sendu boðskort og fleira — allt á einum stað.
Byrjaðu ókeypisHarpa Silfurberg
Austurbakki 2, 101 Reykjavík, Ísland
Um salinn
Silfurberg er ráðstefnusalur á annari hæð í Hörpu. Salurinn rúmar mest 500 manns í veisluuppröðun en talsvert fleiri ef viðburður er fyrir standandi áheyrendur. Svið getur verið í mismunandi stærðum og er færanlegt. Sæti eru laus og gólfið flatt, en möguleiki á að hafa þau útdraganleg og hallandi að hluta við enda salarins. Hægt er að skipta salnum í tvennt með fellivegg sem er hljóðeinangraður og rúmar þá hvor hluti hans mest 325 gesti í sæti. Tvennar hljóðeinangraðar dyr tengja Silfurberg og Norðurljós, en einnig er hægt að samnýta salina fyrir stærri viðburði. Salurinn hentar vel fyrir alls kyns ráðstefnur, veislur og listviðburði. Hann er sérhannaður sem ráðstefnusalur og býr yfir vönduðum tæknibúnaði.Salurinn hentar einnig vel fyrir rafmagnaða tónlist. Hljómburður er miðaður við talað mál og er stillanlegur.

