
Glerskálinn á ION Adventure Hotel
Nesjavellir, 805, Ísland
Um salinn
Glerskálinn á ION Adventure Hotel er glænýr og einstakur viðburðasalur í hjarta Hengilssvæðisins, þar sem íslensk náttúra, hönnun og upplifun renna saman í eina heild. Glerskálinn er 233 fermetrar að stærð og rúmar allt að 150 sitjandi gesti. Hann er fullkominn vettvangur fyrir brúðkaup, stórafmæli, fyrirtækjaviðburði, fundi, veislur og aðra einkaviðburði. Hönnun salarins er bæði nútímaleg og afar sveigjanleg. Gler frá gólfi til lofts umlykur rýmið og skapar sterka og lifandi tengingu við náttúruna. Á staðnum eru 8-10 manna hringborð en teymið aðstoðar fúslega við aðlaga borðaskipan og uppsetningu að þínum þörfum og hugmyndum. ION Adventure Hotel býður jafnframt upp á 66 herbergi, allt frá klassískum herbergjum til glæsilegra svíta, ásamt heitum potti og saunu, sem gerir hótelið einstaklega vel til þess fallið að hýsa viðburðagesti í heildstæðri upplifun – allt á einum stað, fjarri amstri borgarinnar.
Ion Hotel ehf.
Það sem salurinn býður upp á
Veitingar og drykkir
- Veitingar · verður að vera veitt af salnum
- Hressingar · verður að vera veitt af salnum
- Áfengi · verður að vera veitt af salnum
- Starfsfólk · verður að vera veitt af salnum
- Þrif · verður að vera veitt af salnum
- Áfengisleyfi
Aðstaða
- Eldhús
- Bar
- Kaffivél
- Uppþvottavél
- Hljóðkerfi
- Svið
- Bílastæði
- Frítt að leggja
- Útisvæði
- Inniaðstaða
- Þráðlaust net
- Fataskápur
- Búningsherbergi
Búnaður
- Matarílát
- Glerílát
- Borð
- Stólar
- Borðdúkar
- Hljóðnemi
- Myndvarpi
- Skjár
Aðgengi
- Hjólastólaaðgengi
- Lyfta
- Aðgengilegt baðherbergi
Fjöldi salerna: 4
Auka eiginleikar
- Gisting í boði
- Barnvænt
- Sturta
- Heitur pottur
- Gufubað
- Heilsulind (Spa)
- Líkamsræktaraðstaða
Staðsetning
Umsagnir
Engar umsagnir enn
Vertu fyrst/ur til að deila reynslu þinni og hjálpa öðrum að taka betri ákvarðanir.
Allar myndir
Ion Hotel ehf.
