Veislusalur í safnaðarheimili Háteigskirkju
Um salinn
Veislusalurinn á 2. hæð í safnaðarheimili Háteigskirkju býður upp á glæsilega aðstöðu fyrir viðburði af öllum stærðum og gerðum. Háteigskirkja stendur á hæð á fallegum stað miðsvæðis í Reykjavík. Aðgengi að kirkjunni er gott og lysti- og hugleiðslugarður kirkjunnar er mikil prýði. Veislusalurinn rúmar allt að 130 manns í sæti við borð, eða 180 í heildina og er því fullkominn fyrir fjölbreytt viðburðahald. Hvort sem um ræðir brúðkaupsveislur, fermingarveislur, skírnarveislur, afmæli eða erfidrykkjur, mun þessi salur tryggja hátíðlega og stílhreina umgjörð. Einnig er salurinn tilvalinn fyrir ýmiskonar fundi og námskeið, þar sem aðstaðan er bæði nútímaleg og þægileg. Salnum fylgir nýr og fullkominn skjávarpi og stórt sýningartjald, ásamt hljóðkerfi og míkrófóni (bæði handfrjáls og með snúru). Mögulegt er að tengjast hljóðkerfi salarins úr síma, ipod eða tölvu með bluetooth tengingu. Lýsingu salarins er mögulegt að stilla að þörf. Úr suðurgluggum blasir Háteigskirkja við og hinn fagri lysti- og hugleiðslugarður. Við enda salarins er útgengi á bogasvalir með útsýni yfir garðinn, kirkjuna og umhverfi og hringstigi liggur niður í garðinn. Píanó á hjólum er í salnum og því mögulegt að færa það til. Slökkvitæki er í salnum. Öll borð í salnum eru hreyfanleg og því hægt að stilla borðum upp eins og hentar best hverju sinni. Salnum fylgir fullbúið framreiðslueldhús með iðnaðarþvottavél og öllum borðbúnaði og dúkum. Umsjónarkona með veisluþjónustu salarins er Kristín Ólafsdóttir og má í samráði við hana skipuleggja tilhögun veitinga og uppsetningu borða. Sé þess óskað er möguleiki á að koma með eigin veitingar að hluta eða eingöngu. 6 salerni fylgja salnum, þar af eitt stórt með hjólastólaaðgengi. Einnig er til staðar gott fatahengi. Framan við veislusalinn er lítið, afmarkað seturými sem nýtt hefur verið fyrir rólegar samræður í næði, fyrir "photo-booth" myndavél með bakgrunni, eða fyrir teikni- og litaaðstöðu fyrir börn. Gengið er inn í safnaðarheimilið um glerdyr norðanmegin kirkjunnar og gengið upp stiga á 2. hæð þar sem veislusalinn er að finna, en einnig er lyfta á staðnum. Næg bílastæði eru í kringum kirkjuna. Gerið næsta viðburð ógleymanlegan í þessu fallega og einstaka umhverfi.
Safnaðarheimili Háteigskirkju
Það sem salurinn býður upp á
Veitingar og drykkir
- Veitingar · eftir samkomulagi eða eigið
- Hressingar · eftir samkomulagi eða eigið
- Áfengi · aðeins eigið
- Starfsfólk · eftir samkomulagi
- Þrif · þjónustuaðili sér um þrif
- Uppsetning og frágangur · eftir samkomulagi
- Áfengisleyfi
Önnur þjónusta á staðnum: Þjónusta á staðnum á meðan á viðburði stendur er eftir samkomulagi
Aðstaða
- Eldhús
- Kaffivél
- Uppþvottavél
- Hljóðkerfi
- Ljósabúnaður
- Dansgólf
- Bílastæði
- Frítt að leggja
- Útisvæði
- Útsýni
- Inniaðstaða
- Þráðlaust net
Búnaður
- Hnífapör og diskar
- Glös
- Borð
- Stólar
- Borðdúkar
- Hljóðnemi
- Þráðlaus hljóðnemi
- Ræðupúlt
- Myndvarpi
- Skjár
- Píanó
Aðgengi
- Hjólastólaaðgengi
- Lyfta
- Aðgengilegt baðherbergi
Fjöldi salerna: 7
Auka eiginleikar
- Barnvænt
Umsagnir
Engar umsagnir enn
Vertu fyrst/ur til að deila reynslu þinni og hjálpa öðrum að taka betri ákvarðanir.
Allar myndir
Safnaðarheimili Háteigskirkju