
Veislusalurinn í Reiðhöllinni Víðidal
Um salinn
Glæsilegur veislusalur í Víðidal - Leigist með eða án veitinga. Rúmgóður veislusalur sem tekur 100 manns til borðs og 150 manns í standandi veislur og viðburði. Í Reiðhöllinni Víðdal á 2 hæð er einstaklega fallegur, bjartur og rúmgóður salur sem leigist án veitinga á góðu verði. Salurinn hentar sérstaklega vel fyrir tónleikahald, menningarviðburði, afmæli, fermingar, ættarmót, hópefli, starfsmannaveislur, jólahlaðborð, þorrablót, fyrirtækjaskemmtanir, fyrirtækjaferðir, dansleiki, kynningar af ýmsu tagi, fræðslu fyrirlestra, námskeið, ráðstefnur, brúðkaup, árshátíðar, dansleiki, erfidrykkju eða hverskyns veislur og fundi. Salurinn leigist með eða án veitinga á samkeppnishæfu verði. Mögulegt er að leigja forrými reiðhallar undir td. vörukynningar og bjóða svo gestum í veislusalinn til fagnaðar í framhaldi. Í salnum er hljóðkerfi fyrir tal og tónlist, barborð og framleiðslueldhús, sem gerir hann enn fjölhæfari fyrir gesti Í salnum er fullbúið eldhús með góðum ofni, eldavél og uppþvottavél og kæli. Eldhúsið hentar því bæði sem móttökueldhús sem og að full elda mat fyrir veislur. Allur helsti borðbúnaður fylgir með. Salurinn er leigður út með eða án veitinga, fyrir þá sem þess óska erum við í samstarfi við veisluþjónustur sem getur töfrað fram það sem hugurinn girnist. Úr sal er gengið út á rúmgóðar svalir þar sem hægt er að grilla og njóta stórkostlegrar útsýnisins um dalinn. Anddyrið er mjög rúmgott og mögulegt að vera með borð t.d fyrir miðasölu og vaktað fatahengi. Aðgengi er gott, lyfta og næg bílastæði. Innifalið í leigu borðbúnaður og afnot af framreiðslueldhúsi. Athugið að dúkar fylgja ekki en hægt er að leigja þá hjá okkur. Leyfi er fyrir veisluhöldum til kl 02. Í boði er að leigja ýmislegt skraut, stólacover, kælibala og fleira á vægu verði.
Fákur - Matur ehf
Það sem salurinn býður upp á
Veitingar og drykkir
- Veitingar · eftir samkomulagi eða eigið
- Hressingar · eftir samkomulagi eða eigið
- Áfengi · eftir samkomulagi eða eigið
- Starfsfólk · þjónustuaðili útvegar
- Þrif · þjónustuaðili sér um þrif
- Uppsetning og frágangur · eftir samkomulagi
- Áfengisleyfi
Aðstaða
- Eldhús
- Bar
- Hljóðkerfi
- Ljósabúnaður
- Svið
- Dansgólf
- Bílastæði
- Frítt að leggja
- Útisvæði
- Útsýni
- Inniaðstaða
Búnaður
- Hnífapör og diskar
- Glös
- Borð
- Stólar
- Hljóðnemi
- Þráðlaus hljóðnemi
- Ræðupúlt
- Myndvarpi
- Pennar & blöð
Aðgengi
- Hjólastólaaðgengi
- Lyfta
- Aðgengilegt baðherbergi
Fjöldi salerna: 13
Auka eiginleikar
- Barnvænt
Staðsetning
Upplýsingar um bílastæði
Stórt og gott aðgengi að bílastæðum. Frítt að leggja
Umsagnir
Engar umsagnir enn
Vertu fyrst/ur til að deila reynslu þinni og hjálpa öðrum að taka betri ákvarðanir.
Allar myndir
Fákur - Matur ehf

