
Uppspretta Fundarsalur Elliðaárstöð
Rafstöðvarvegur 14, 108 Reykjavík, Ísland
Um salinn
Uppspretta er rúmgóður og sveigjanlegur salur á annarri hæð Gestastofu Elliðaárstöðvar, sem býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir ýmiss konar viðburði. Salurinn hentar vel fyrir allt að 70 manns í standandi viðburði, 50 manns í leikhús uppstillingu og 30 manns í skólastofu uppstillingu. Einnig er tilvalið að stilla upp langborði eða U-borði fyrir allt að 16 manns, sem skapar notalegt og persónulegt andrúmsloft. Í salnum er stór skjár, tússtafla, hljóðnemi, einfalt hljóðkerfi og fjarfundarbúnaður sem gerir hann vel búinn fyrir ráðstefnur, vinnustofur, fundi og kynningar. Á hæðinni er sameiginleg kaffiaðstaða með kaffi, heitum drykkjum og sódavatni, sem fylgir leigunni og gerir gestum kleift að njóta góðra veitinga í hléi. Aðgengi að húsinu er gott og næg bílastæði eru á svæðinu. Fallegt umhverfi, kyrrð og nálægð við náttúruna og Elliðaá skapa einstaka og afslappaða umgjörð um Gestastofuna. Uppspretta er því kjörinn salur fyrir þá sem leita að friðsælu og sérstöku rými fyrir ráðstefnur, vinnustofur, fundi eða kynningar.
Elliðarárstöð
Það sem salurinn býður upp á
Veitingar og drykkir
- Veitingar · salurinn eða eigið
- Hressingar · verður að panta hjá salnum
- Áfengi · aðeins eigið
- Starfsfólk · gestgjafi útvegar sjálfur
- Þrif · gestgjafi þrífur sjálfur
Aðstaða
- Hljóðkerfi
- Bílastæði
- Frítt að leggja
- Inniaðstaða
Búnaður
- Hljóðnemi
- Skjár
- Tússtafla
- Myndfundabúnaður
Aðgengi
- Hjólastólaaðgengi
Umsagnir
Engar umsagnir enn
Vertu fyrst/ur til að deila reynslu þinni og hjálpa öðrum að taka betri ákvarðanir.
Allar myndir
Elliðarárstöð


