Leigðu út fundarherbergi á netinu — bókað og greitt á augabragði
Melda heldur utan um framboð, verð eftir tímum og greiðslur fyrir fundarherbergin þín. Gestir bóka beint, greiða strax og plássið læsist um leið — Melda sér um færsluhirðinguna í samvinnu við Straum.
- Melda innheimtir og miðlar greiðslum
- Bókað og greitt á örfáum sekúndum
- Settu bókunarvélina beint á eigin heimasíðu

Prófa bókunarvél
Svona sjá gestirnir þínir bókunarferlið
Ýttu á hnappinn til að ganga í gegnum sama ferli og gestir þínir — framboð, verð fyrir valinn tíma og greiðslu.
Þetta er lifandi bókunarvél. Þú getur klárað ferlið til að skoða hvernig það kemur út frá sjónarhorni leigutakans.
Allt sem þarf til að leigja út fundarherbergi
Gestir bóka og greiða á augabragði
Færsluhirðing í gegnum Straum. Greiðslur og staðfestingargjöld í einu ferli.
Bókunarvél fyrir þína eigin heimasíðu
Verð eftir tímum, dagpörtum og heilum dögum
Settu myndir og ítarlegar upplýsingar um herbergin þín fram á skýran og skipulagðan máta
Samþættingar við bókhald og dagatöl — Payday, dk, Outlook og Google Calendar
01Beinbókun
Bókað og greitt á augabragði
Fundarherbergi seljast í mörgum litlum bókunum — þá viltu ekki standa í tölvupóstum. Gesturinn velur tíma, greiðir strax og plássið læsist um leið, allan sólarhringinn.
- Gestir bóka og greiða án þess að bíða eftir svari
- Plássið læsist um leið og greitt er
- Virkar allan sólarhringinn, líka utan opnunartíma
- Þú færð yfirlit yfir allar bókanir á einum stað
Fundarherbergi 2 · 21. júní
Bókað · greitt · pláss læst
02Verðstýring eftir tímum
Rétt verð fyrir hvern tíma — sjálfkrafa
Morguntími, hádegi og kvöld eru ekki sama varan. Settu grunnverð og láttu kerfið stýra verði eftir tíma dags, vikudegi og dagsetningu, svo vinsælustu tímarnir verðleggi sig sjálfir.
- Verð eftir klukkutímum, dagpörtum eða heilum dögum
- Álag á eftirsótta tíma og daga
- Sérverð á einstaka dagsetningar
- Gestir sjá nákvæmt verð fyrir sinn tíma strax
03Bókunarvél á vefinn þinn
Bókunarvél beint á þína eigin heimasíðu
Beindu gestum á vefinn þinn í stað þess að standa í símtölum og tölvupóstum. Þú setur kóðabrot inn á heimasíðuna þína og færð fullbúna bókunarvél tengd við vörumerkið þitt. Beinar bókanir og greiðslur í staðinn fyrir óskýra tölvupósta og símtöl þar sem smáatriðin gleymast.
- Beinar bókanir með greiðslu strax
- Lítið kóðabrot — virkar á öllum síðum
- Sama framboð og verð alls staðar
- Færri símtöl og tölvupóstar, fleiri beinar bókanir
04Færsluhirðing í samstarfi við Straum
Taktu við greiðslum strax og án fyrirhafnar
Þú þarft ekki að gera þinn eigin samning við Straum eða annan færsluhirði. Melda miðlar greiðslum, svo þú færð greitt með korti um leið og bókun er gerð.
- Melda sér um tæknilegu hliðina á innheimtunni
- Greitt að fullu eða með staðfestingargjaldi
- Hver greiðsla með skýrri sögu og rekjanleika
Fleira sem Melda gerir
Fundarherbergi þurfa alls konar. Melda gerir það allt
Fyrir utan bókanir, verð og greiðslur er allt hitt sem skiptir máli til að halda vel utan um reksturinn, búnað, hliðartekjur, samskipti við leigutaka og skilmála.
Aðgengi að öllum gögnum hvar sem er
Ekki tjóðra þig við tölvuna — þú hefur aðgang að allri virkni Meldu í símanum, og allir sem koma að rekstrinum komast í sömu upplýsingar.
- Símavæn hönnun og viðmót
- Engin Excel-skjöl og Calendar-kerfi lengur
Lifandi framboð
Gestir sjá lausa tíma og bóka strax. Meiri sýnileiki þýðir fleiri bókanir — líka á tímum sem annars hefðu staðið auðir.
- Gestir sjá lausa tíma og bóka á staðnum
- Fyllir tíma sem annars hefðu staðið auðir
Aukabúnaður og þjónusta
Seldu aukaþjónustu með hverju herbergi. Skjávarpi, fjarfundabúnaður, tússtafla, veitingar, þrifagjöld og hvað eina sem þér dettur í hug!
- Verðlagður aukabúnaður sem gestir velja sjálfir
- Mismunandi búnaður fyrir hvert herbergi
Seldu veitingar með herberginu
Bjóddu kaffi, hressingu eða hádegismat með herberginu. Veldu samstarfsaðila úr flokki veisluþjónusta á Meldu og seldu þjónustuna þeirra fyrir þóknun í bókunarferlinu.
- Veitingar sem skylda eða valkostur í bókuninni
- Söluþóknun reiknuð og rakin á hverja bókun
Mörg herbergi í einu viðmóti
Haltu utan um mörg fundarherbergi eða rými. Hvert þeirra með eigin verði og framboði.
- Sérverð og framboð fyrir hvert herbergi
- Hægt að setja upp sveigjanleg rými (sameinanleg herbergi)
- Yfirlit yfir bókanir í öll herbergin á einum stað
Öll samskipti á einum stað
Haltu samskiptum við gesti í einum þræði fyrir hverja bókun — og leyfðu öllu teyminu að fylgjast með.
- Skilaboð og skjöl á einum þræði
- Allir starfsmenn hafa aðgang að sömu samskiptum
Skilmálar og afbókanir
Settu þína eigin skilmála um greiðslu og afbókunarfyrirvara. Settu líka inn almenna skilmála sem leigutakar samþykkja við greiðslu til að vernda þig fyrir tjóni.
- Skýrir afbókunarskilmálar sem gestir samþykkja
- Greiðsla við bókun verndar þig ef leigutaki hættir við
Frá klukkutímum upp í marga daga
Taktu við tímabókunum, dagpörtum, heilum dögum og bókunum sem ná yfir marga daga — fyrir námskeið, ráðstefnur og vinnustofur.
- Tímabókanir, dagpartar, heilir dagar eða fleiri dagar
- Rétt verð fyrir hvert snið og allt tímabilið
Samþættingar
Tengist kerfunum sem þú notar nú þegar
Melda talar við bókhaldið og dagatalið þitt svo upplýsingarnar skila sér sjálfkrafa á réttan stað — engin tvískráning.
Bókhald
Samþætting við Payday og dk
Bókanir og greiðslur skila sér beint í bókhaldskerfið þitt. Ekkert handvirkt utanumhald og ekkert týnist á leiðinni.
Dagatöl
Samstilling við Outlook og Google Calendar
Bókanir birtast sjálfkrafa í dagatalinu þínu og framboðið helst rétt — sama hvar þú vinnur.
Á döfinni
Fleiri samþættingar væntanlegar
Meðal annars tengingar við bókunarkerfi hótela (PMS). Vantar þig ákveðna samþættingu? Heyrðu í okkur.
Tvær leiðir að bókun
Taktu við bókunum eða beiðnum — þú ræður
Stilltu hvort gestir geta klárað bókanir sjálfir, eða hvort þú vilt staðfesta hverja bókun fyrir sig.
Beinbókun
- Gestir bóka og greiða strax
- Plássið læsist um leið og greitt er
- Hentar reglulegum bókunum á föstu verði
- Engin bið — bókun klárast í einu ferli
Bókunarbeiðni
- Gesturinn sendir fullbúna beiðni sem þú samþykkir
- Svigrúm fyrir tilboð, búnað og séróskir
- Hentar ráðstefnum og föstum samningum
- Greitt þegar tilboð er samþykkt
Þú getur notað báðar leiðir samtímis — bókanir fyrir venjulega tíma og beiðnir fyrir stærri viðburði.
Teymið á bak við Meldu
Við kunnum á bókanir
Áður en Melda varð til unnum við samanlagt í 20 ár hjá Bókun, framboðs- og bókunarkerfinu sem stór hluti íslenskrar ferðaþjónustu keyrir á og TripAdvisor festi síðar kaup á. Þar unnum við að bókunarvélum, framboðsdagatölum og daglegum rekstri — og milljónir ferðamanna bókuðu í gegnum kerfin.
Veislusalir og fundarherbergi glíma við það sama: framboð, verð og bókanir sem verða einfaldlega að virka. Við vitum hvar svona kerfi eiga það til að klikka — og byggðum Meldu með það í huga.
Spurningar um bókunarkerfi fyrir fundarherbergi
Svör við því sem rekstraraðilar fundarherbergja spyrja oftast áður en þeir byrja.
Þínar hugmyndir fá hljómgrunn
Melda er íslenskt kerfi í örri þróun og við byggjum það í samtali við notendur. Vantar þig ákveðna virkni, samþættingu eða sérlausn? Segðu okkur frá — við hlustum og útfærum hratt.
- Beint samband við teymið
- Óskir notenda móta forgangsröðina
- Nýjungar á dögum, ekki mánuðum
Tilbúin að leigja út fundarherbergi á netinu?
Sjáðu hvernig Melda heldur utan um verð, bókanir og greiðslur fyrir fundarherbergin þín í einni stuttri kynningu.
Engin skuldbinding — við sýnum þér kerfið og svörum spurningum.
Bókaðu kynningu
Fylltu út formið og við höfum samband og sýnum þér kerfið.
Eða hafðu beint samband á melda@melda.is