
Algengar spurningar á viðburðinum þínum
Svaraðu spurningunum sem gestir spyrja alltaf, einu sinni. Bílastæði, klæðaburður og barnapössun birtast beint á gestasíðunni og valfrjálst á skráningarsíðunni.

Svaraðu spurningunum sem gestir spyrja alltaf, einu sinni. Bílastæði, klæðaburður og barnapössun birtast beint á gestasíðunni og valfrjálst á skráningarsíðunni.

Breyttu hvaða skjá sem er í lifandi myndavegg. Gestir skanna QR-kóða og myndir, myndbönd og kveðjur birtast á skjánum í rauntíma. Ekkert smáforrit.

Árshátíðin er bara toppurinn á ísjakanum. Litlu starfsmannaviðburðirnir móta vinnustaðamenninguna í raun, og Melda er jafn góð í þeim og þeim stóru.

Gestir setja lög á listann, kjósa uppáhöldin upp og niður og plötusnúðurinn fær lifandi Spotify-aðgang. Engin innskráning fyrir gesti. Bara stuð.

Settu bókunarvél fyrir veislusali og fundarherbergi beint á vefinn með einni línu af kóða — gestir bóka án þess að fara af síðunni.

Bókunarbeiðnir fyrir veislusali: taktu á móti skýrt mótaðri fyrirspurn með öllum forsendum, ræddu smáatriðin í Meldu og staðfestu. Sveigjanlegt og hraðvirkt.

Bjóddu verðandi maka eða samstarfsfólki að stjórna viðburðum með þér. Allir með sinn eigin aðgang, skýr hlutverk og sömu yfirsýn í rauntíma.

Bjóddu gestum með Meldu og notaðu QR miðaskönnun við dyrnar. Sláðu inn PIN, skannaðu og staðfestu hvern gest á broti úr sekúndu. Virkar líka án nets.

Við viljum halda geggjað partý, en við viljum líka hafa þak á kostnaðinum. Stafrænu drykkjamiðarnir í Meldu gefa þér fullkomna stjórn á vettvangi og í bókhaldinu.

Nettengingar á viðburðum geta verið óáreiðanlegar. Ef þú ætlar að skanna aðgöngu- og drykkjarmiða á viðburðinum þínum þarf tæknin að virka í takmörkuðu netsambandi.

Hvað þarftu mikil drykkjarföng í veisluna þína? Eigum við ekki að kaupa smá vín, bjór, kannski kokteila, og ekki gleyma núllurunum. Það eru svo margir að fara að æfa fyrir næsta Laugavegs maraþon.

Ekki neyða gestina þína læra á mörg kerfi til að koma í veisluna þína. Í Meldu er öll virkni til staðar í einu flæði: gestalistinn, boðsferlið, meldingarsíður, spurningar og svör, sætaskipan og gjafa óskalistar

Haltu utan um öll útgjöld viðburðarins á einum stað. Berðu saman tilboð, fylgstu með stöðunni og sjáðu hvort áætlunin standist í rauntíma.

Spurðu gesti um flug, mataræði og allt sem skiptir máli við meldingu. Veldu úr sjö tegundum svara og láttu skilyrtar spurningar birtast eftir svörum hvers gests.

Stilltu hámarksfjölda á viðburðinn þinn. Þegar öll pláss eru farin lenda meldingar á biðlista. Þú hleypir gestum inn einum í einu þegar pláss losnar.

Deildu dagskránni með gestum í rauntíma. Lifandi Núna-merki, mjúk framvinduslá og ítarleg tímalína beint á meldingar- og gestasíðunnni. Prófaðu núna.

Skipaðu gestum á borð eða leyfðu þeim að velja sér sæti sjálfir. Prentaðu svo borðaspjöld og láttu öllum líða eins og kóngafólki í veislunni þinni.