Taktu við bókunum og greiðslum fyrir veislusalinn — allt á einum stað
Melda heldur utan um framboð, verð, fyrirspurnir og greiðslur fyrir salinn þinn og framkvæmir færsluhirðingu í samvinnu við Straum.
- Melda innheimtir og miðlar greiðslum
- Nákvæm verðstýring eftir dögum og helgarálagi
- Settu bókunarvélina beint á eigin heimasíðu
Ný bókun — Salur A
Öruggar greiðslur · Straumur
Svona sjá gestirnir þínir bókunarferlið
Ýttu á „Bóka sal“ til að ganga í gegnum sama ferli og gestir þínir — framboð, verð fyrir valda dagsetningu og staðfestingargjald.
Þetta er lifandi bókunarvél. Þú getur klárað ferlið til að skoða hvernig það kemur út frá sjónarhorni leigutakans.
Allt sem veislusalur þarf til að taka á móti bókunum
Nákvæm verðstýring eftir dögum, árstíðum og helgum
Færsluhirðing í gegnum Straum. Staðfestingargjöld, eftirstöðvar og aukakostnaður. Allt í einu ferli.
Bókunarvél fyrir þína eigin heimasíðu
Veitingaþóknun reiknuð, skipt og rakin á hverja bókun
Settu myndir og ítarlegar upplýsingar um salinn þinn fram á skýran og skipulagðan máta
Rétt verð fyrir hvern dag — sjálfkrafa
Föstudagskvöld og laugardagar eru ekki sama vara og þriðjudagsmorgnar. Í Meldu setur þú upp grunnverð og lætur kerfið hækka eða lækka eftir vikudegi, árstíð eða einstökum dagsetningum.
- Grunnverð á sal með álagi eftir vikudegi og helgi
- Árstíðabundið verð og verð fyrir háannatíma
- Sérverð á einstaka dagsetningar — hátíðir, áramót, stórhelgar
- Gestir sjá nákvæmt verð fyrir sína dagsetningu strax
Bókunarbeiðni stillt upp í samráði við leigutaka
Fyrirspurn í Meldu er ekki bara skilaboð. Gesturinn fer í gegnum skýrt bókunarferli: velur dagsetningu, tíma, fjölda gesta, tilefni, veitingar og aukahluti. Melda rekur saman fullbúna bókunarbeiðni sem þú samþykkir eða svarar með tilboði. Bókunin staðfestist þegar leigutakinn greiðir staðfestingargjald.
- Gesturinn velur dagsetningu, tíma, fjölda gesta og tilefni
- Veitingar og aukahlutir veljast í sama ferli
- Þú færð fullbúna beiðni — samþykkir hana eða sendir tilboð
- Dagsetning læsist þegar staðfestingargjald er greitt
Bókunarbeiðni — Salur A
Beiðni send · bíður samþykkis
Bókunarvél beint á þína eigin heimasíðu
Beindu gestum á vefinn þinn í stað þess að standa í símtölum og tölvupóstum. Þú setur kóðabrot inn á heimasíðuna þína og færð fullbúna bókunarvél tengd við vörumerkið þitt. Vel skilgreindar og skýrar bókunarbeiðnir í staðinn fyrir óskýra tölvupósta og símtöl þar sem smáatriðin gleymast.
- Bókunarbeiðnir með öllum upplýsingum sem þarf
- Lítið kóðabrot — virkar á öllum síðum
- Sama framboð og verð alls staðar
- Færri símtöl og tölvupóstar, fleiri skýrar beiðnir
Taktu við greiðslum fyrr og án fyrirhafnar
Þú þarft ekki að gera þinn eigin samning við Straum eða annan færsluhirði. Melda miðlar greiðslum. Þú færð staðfestingargjald við bókun og eftirstöðvar greiðast eftir þeim skilmálum sem þú setur upp.
- Melda sér um tæknilegu hliðina á innheimtunni
- Staðfestingargjöld, fullnaðargreiðslur og afbókunargjöld
- Hver greiðsla með skýrri sögu og rekjanleika
Veislusalir þurfa alls konar. Melda gerir það allt
Fyrir utan verð, fyrirspurnir og greiðslur er allt hitt sem skiptir máli til að halda vel utan um reksturinn, aukaþjónustur, hliðartekjur, samskipti við leigutaka og skilmála.
Aðgengi að öllum gögnum hvar sem er
Ekki tjóðra þig við tölvuna — þú hefur aðgang að allri virkni Meldu í símanum, og allir sem koma að rekstrinum komast í sömu upplýsingar.
- Símavæn hönnun og viðmót
- Engin Excel-skjöl og Calendar-kerfi lengur
Seldu veitingaþjónustu með leigunni
Gerðu veisluþjónustu hluta af vöruframboðinu þínu. Veldu þér samstarfsaðila úr flokki veisluþjónusta á Meldu og seldu þjónustuna þeirra fyrir þóknun í bókunarferlinu.
- Veitingar sem skylda eða valkostur í bókuninni
- Söluþóknun reiknuð og rakin á hverja bókun
Lifandi framboð
Gestir sjá nákvæmlega hvað er laust og bóka strax. Meiri sýnileiki þýðir fleiri bókanir — líka á dögum sem annars hefðu staðið auðir.
- Gestir sjá laus kvöld og bóka á staðnum
- Fyllir dagsetningar sem annars hefðu selst illa
Aukaþjónustur fyrir hvern sal
Seldu aukaþjónustu fyrir hvern sal. Aðstoð í eldhúsi, tækjaleiga, skreytingar, veitingar, þrifagjöld og hvað eina sem þér dettur í hug!
- Verðlagðar aukaþjónustur sem gestir velja sjálfir
- Settu saman tilbúna pakka fyrir algeng tilefni
Margir salir í einu viðmóti
Haltu utan um marga sali eða rými. Hver þeirra með eigin verði og framboði.
- Sérverð og framboð fyrir hvern sal
- Hægt að setja upp sveigjanleg rými (stækkanlegir salir)
- Yfirlit yfir bókanir í alla salina á einum stað
Öll samskipti á einum stað
Haltu öllum samskiptum við leigutaka í einum þræði fyrir hverja bókun — og leyfðu öllu teyminu að fylgjast með.
- Skilaboð, tilboð og skjöl á einum þræði
- Allir starfsmenn hafa aðgang að sömu samskiptum
Skilmálar og afbókanir
Settu þína eigin skilmála um staðfestingargjald, afbókunarfyrirvara og greiðslu eftirstöðva. Settu líka inn almenna skilmála sem leigutakar samþykkja við greiðslu til að vernda þig fyrir tjóni.
- Skýrir afbókunarskilmálar sem gestir samþykkja
- Staðfestingargjald verndar þig fyrir tjóni ef leigutaki hættir við
Tímar, dagpartar og fjöldægra bókanir
Taktu við tímabókunum, dagpörtum, heilum dögum og bókunum sem ná yfir marga daga — eftir því hvað hver salur býður upp á.
- Tímabókanir, dagpartar, heilir dagar eða heilar helgar
- Rétt verð fyrir hvert snið og allt tímabilið
Bókunarbeiðni eða bein bókun — þú ræður
Veldu hvernig gestir bóka hjá þér. Veislusalir velja yfirleitt bókunarbeiðnir, en bein bókun hentar einföldum rýmum.
Bókunarbeiðni
Mælt með fyrir veislusali- Gesturinn klárar allt bókunarferlið og sendir beiðni
- Þú samþykkir áður en dagsetning læsist
- Svigrúm fyrir tilboð, veitingar og séróskir
- Staðfestingargjald greitt þegar tilboð er samþykkt
Bein bókun
Hentar fundarherbergjum- Gestir bóka og greiða strax
- Hentar einföldum rýmum með föstu verði
- Framboð læsist um leið og greitt er
- Engin bið — bókun klárast í einu ferli
Þú getur notað sitthvora leiðina fyrir mismunandi sali — fyrirspurn fyrir stóra salinn og beina bókun fyrir minni fundaraðstöðu.
Spurningar um bókunarkerfi fyrir veislusali
Svör við því sem rekstraraðilar veislusala spyrja oftast áður en þeir byrja.
Tilbúin að taka á móti bókunum á netinu?
Sjáðu hvernig Melda heldur utan um verð, fyrirspurnir og greiðslur fyrir veislusalinn þinn í einni stuttri kynningu.
Engin skuldbinding — við sýnum þér kerfið og svörum spurningum.
Bókaðu kynningu
Fylltu út formið og við höfum samband og sýnum þér kerfið.
Eða hafðu beint samband á melda@melda.is