Ljósmyndastíll og vinnubrögð
Vinnubrögð við ljósmyndun: Nærgætinn - læt fólk vera eðlilegt
Um þennan ljósmyndara
Ég er búinn að starfa við ljósmyndun síðan 2011 og hef víðtæka og mjög fjölbreytta reynslu og kunnáttu. Ég býð því upp á alhliða ljósmyndun af öllum toga en hef undanfarin ár unnið mest sem brúðkaupsljósmyndari, hef tekið mikið magn af fermingarmyndatökum, viðburðum og portrait myndum fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki. Ég vinn um allt land en einnig á meginlandi Evrópu. Ég legg áherslu á að hafa liti sem eðlilegasta og elti ekki tískustrauma með filterum sem standast svo ekki tímans tönn. Ég hef einnig lagt mikið upp úr því að það sé afslappað og þægilegt að vinna með mér, að fólk geti verið það sjálft og ekki haft áhyggjur af því hvort það sé að gera hlutina rétt. Ég minni mína viðskiptavini á að ég er að vinna fyrir þau en ekki á hinn veginn. Það er bara einn fagmaður á staðnum og það er á mína ábyrgð, ekki ykkar, að dagurinn fari vel. Endilega hafið samband og við getum farið yfir hvað ég get gert fyrir ykkur.
Thule Photo
Helstu kostir
Viðbótarþjónusta og sérstakar hæfnir
Hvað færðu afhent?
Aðstoð við skipulagningu
Ferðalög og vegalengdir
Viðbótarupplýsingar
Viðbótarupplýsingar
Verð og afhendingartími fer eftir tegund verkefna. Ég býð líka upp á hönnun og gerð ljósmyndabóka.
Þjónustusvæði
Þjónustan er í boði um allt Ísland.
Umsagnir
Vertu fyrst/ur til að deila reynslu þinni og hjálpa öðrum að taka betri ákvarðanir.
Allar myndir
Thule Photo