Um salinn
ÆGIR 220 er einstaklega heillandi veislu- og viðburðasalur staðsettur við smábátahöfnina í Hafnarfirði. Salurinn er í sögulegu gömlu skreiða- og frystihúsi, sem býður upp á mikla lofthæð og gróft yfirbragð, ásamt skemmtilegri lýsingu sem skapar einstaka sjónræna stemningu. Í salnum er svið sem hentar fullkomlega fyrir hljómsveitir, uppákomur og skemmtiatriði. Auk þess er til staðar fullkomið hljóðkerfi fyrir tal og tónlist, ásamt skjávarpa. Borðin má raða þannig að myndast dansgólf fyrir framan sviðið. ÆGIR 220 státar af fjölbreyttu úrvali handverksbjóra frá ÆGI brugghúsi, þar sem níu ólíkir bjórar eru á krana, ásamt einu kranastéli og einföldum bar með öllu því helsta, léttvíni, sterku og óáfengu. Einnig er boðið upp á bjórkúta á góðu verði og skemmtilega bjórkynningu. Aðgengi að salnum er gott, með nægum bílastæðum og útisvæði í einstöku umhverfi hafnarinnar. Þetta er fullkominn staður fyrir fermingarveislur, afmæli, fundi, brúðkaup, árshátíðir, barnaskírnir og aðra veislur.
ÆGIR 220
Helstu kostir
Veitingar og drykkir
Aðstaða
Búnaður
Aðgengi
Auka eiginleikar
Allar myndir
ÆGIR 220