Um salinn
Akademían er bjartur og fallegur fundarsalur og fundarherbergi staðsett í hjarta miðbæjar Reykjavíkur. Salurinn er á þriðju hæð við Hafnarstræti 5 og gengið inn um glæsilegt nýuppgert anddyri með rúmgóðri lyftu og fallegum stigagangi. Allt húsnæðið hefur verið endurnýjað og býður upp á nútímalegt og notalegt umhverfi. Í salnum eru borð og stólar sem hægt er að raða upp á fjölbreyttan hátt, allt eftir þörfum viðburðarins. Hægt er að stilla upp sem langborð fyrir 16 manns, skólastofu fyrir 30 manns eða leikhúsuppstillingu fyrir allt að 50 manns. Akademían er með móttökueldhús sem er búið ísskáp, uppþvottavél og aðstöðu til að hella upp á kaffi, sem gerir skipulagningu fundarins enn þægilegri. Salernisaðstaða er við innganginn að salnum. Við innganginn er einnig rúmgott fundarherbergi með langborði fyrir 16 manns, sem hægt er að leigja sér sérstaklega. Salurinn er leigður út án veitinga, en gestir geta auðveldlega pantað veitingar frá einhverjum af fjölmörgum veitingastöðum í nágrenninu og þannig gert góðan hádegisfund eða viðburð enn betri. Akademían hentar einstaklega vel fyrir fundi, námskeið, kennslu, veislur og viðburði þar sem óskað er eftir góðu næði og notalegu umhverfi í miðbæ Reykjavíkur.
Akademían Fundarsalir
Það sem salurinn býður upp á
Veitingar og drykkir
- Veitingar · salurinn eða eigið
- Hressingar · salurinn eða eigið
- Áfengi · salurinn eða eigið
- Starfsfólk · gestgjafi útvegar sjálfur
- Þrif · gestgjafi þrífur sjálfur
Aðstaða
- Eldhús
- Kaffivél
- Uppþvottavél
- Inniaðstaða
Búnaður
- Borð
- Stólar
- Skjár
- Tússtafla
Aðgengi
- Hjólastólaaðgengi
- Lyfta
Staðsetning
Umsagnir
Engar umsagnir enn
Vertu fyrst/ur til að deila reynslu þinni og hjálpa öðrum að taka betri ákvarðanir.
Akademían Fundarsalir