Fara í meginefni
Melda
25sæti
100standandi
Hentar fyrir
Brúðkaup
Partý
Ráðstefna
Annað

Um salinn

Ásmundarsalur, heimili og vinnustofa Ásmundar Sveinssonar, er einstaklega heillandi sýninga- og viðburðahús sem stendur við hlið Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti. Húsið skartar spennandi arkitektúr og fallegri birtu sem leikur um fjölbreytt rými þess. Á efri hæðinni er Ásmundarsalur, opið rými sem er tilvalið fyrir myndlistasýningar og veislur. Þetta rúmgóða svæði hentar vel fyrir standandi veislur og opnanir og getur tekið á móti yfir 100 manns. Salurinn er leigður án húsgagna, en Ásmundarsalur getur aðstoðað við leigu á borðum, stólum og borðbúnaði ef þess er þörf. Á neðri hæð hússins er annar salur sem býður upp á sæti fyrir allt að 25 manns og hýsir á daginn kaffihús Reykjavík Roasters. Á kvöldin er þessi salur leigður út fyrir fundi eða smærri veislur. Þar er einnig fundarherbergi sem veitir gott næði fyrir allt að 8 manna hóp. Fyrir stærri viðburði er mögulegt að leigja allt húsið, en einnig er hægt að leigja neðri hæðina sérstaklega fyrir smærri veislur, menningarviðburði eða fundi á kvöldin. Staðsetning Ásmundarsalar við hlið Hallgrímskirkju gerir hann að kjörnum stað fyrir brúðkaupsveislur og erfidrykkjur. Hann hentar einnig vel fyrir opnanir og kokteilveislur. Hins vegar er mikilvægt að taka tillit til yfirstandandi sýninga í húsinu þegar áætlað er fyrir viðburði.

Ásmundarsalur

Sætaskipan
Standandi

Veitingar og drykkir

Veitingaraðeins eigið
Hressingaraðeins eigið
Áfengiaðeins eigið
Starfsfólkaðeins eigið
Þrifaðeins eigið

Aðstaða

Inniaðstaða
Eldhús
Bar
Kaffivél
Uppþvottavél
Hljóðkerfi
Ljósabúnaður
Svið
Dansgólf
Bílastæði
Frítt að leggja
Útisvæði
Þráðlaust net
Fataskápur
Búningsherbergi

Búnaður

Matarílát
Glerílát
Borð
Stólar
Borðdúkar
Hljóðnemi
Myndvarpi
Skjár
Karaoke
Píanó
Gítar

Aðgengi

Hjólastólaaðgengi
Lyfta
Rampur fyrir hjólastóla
Aðgengilegt baðherbergi

Auka eiginleikar

Gisting í boði
Tjaldsvæði
Barnvænt
Gæludýravænt
Reykingar leyfðar
Öryggisgæsla
Sturta
Heitur pottur
Gufubað
Sundlaug
Heilsulind (Spa)
Líkamsræktaraðstaða

Allar myndir