Fara í meginefni
Melda
28sæti
Tegund sals
SalurFyrirlestrarsalurFundarherbergi
Hentar fyrir
AfmæliRáðstefnaPartýNámskeiðBrúðkaupÁrshátíð
Sætaskipan
Hefðbundið borðhaldLeikhús uppsetningKabarett

Um salinn

Fullkominn bíósalur fyrir allt að 28 manns í sæti, staðsettur á vinsæla veitingastaðnum Lóla í hjarta miðbæjar Reykjavíkur. Salurinn býður upp á þægilega bíóstóla með litlum borðum við hvern stól, sem tryggir bæði þægindi og notalega stemningu. Sýningarvélin er nettengd, sem gerir það einfalt og þægilegt að tengjast því efni sem sýna á hverju sinni. Í salnum er öflugt hljóðkerfi og stýranleg lýsing sem gefur möguleika á að skapa réttu stemninguna fyrir hvert tilefni. Bíósalurinn hentar einstaklega vel fyrir kvikmyndakvöld, kynningar, námskeið og fundi. Einnig er auðvelt að breyta salnum í skemmtilegt Karaoke umhverfi fyrir hópefli eða afmæli. Veitingastaðurinn Lóla býður upp á glæsilegar matarveitingar og drykki, auk borðstæðna, barborðs og langborðs sem rúmar hópa allt að 20 manns. Einnig er hægt að leigja allan staðinn fyrir einkasamkvæmi og veislur. Lóla er einstakur staður fyrir fermingarveislur, afmæli, fundi, árshátíð eða aðrar veislur þar sem fagleg þjónusta og hlýlegt andrúmsloft eru í fyrirrúmi.

Bíósalur Lóla

Það sem salurinn býður upp á

Veitingar og drykkir

  • Veitingar · verður að panta hjá salnum
  • Hressingar · verður að panta hjá salnum
  • Áfengi · verður að panta hjá salnum
  • Starfsfólk · salurinn útvegar
  • Þrif · salurinn sér um þrif
  • Áfengisleyfi

Aðstaða

  • Bar
  • Hljóðkerfi
  • Ljósabúnaður
  • Inniaðstaða
  • Þráðlaust net

Búnaður

  • Matarílát
  • Glerílát
  • Borð
  • Stólar
  • Myndvarpi
  • Skjár
  • Karaoke

Umsagnir

Engar umsagnir enn

Vertu fyrst/ur til að deila reynslu þinni og hjálpa öðrum að taka betri ákvarðanir.

Allar myndir