
Um salinn
Veislusalurinn á Center Hotels Plaza er glæsilegur salur staðsettur á Aðalstræti 4–6, beint við Ingólfstorg í hjarta miðborgarinnar. Salurinn er á jarðhæð og býður upp á frábært aðgengi, auk stórra glugga sem gefa rýmið bjart og notalegt yfirbragð. Úr salnum er útgengi í afgirt port sem er útbúið borðum, stólum og fallegum gróðri – fullkomið til að fá sér ferskt loft eða útbúa notalegt útisvæði fyrir gesti. Salurinn rúmar allt að 64 gesti sitjandi við borð eða allt að 130 gesti í standandi veislu, sem gerir hann hentugan fyrir fjölbreytt tilefni á borð við fermingarveislur, afmæli, fundi, brúðkaup, árshátíðir, barnaskírnir og aðrar veislur og ráðstefnur. Í salnum er fyrsta flokks hljóðkerfi, míkrófónn, innbyggður skjávarpi og sýningartjald, auk þess sem hægt er að setja upp svið ef þess er óskað. Boðið er upp á veitingar í formi ljúffengs pinnahlaðborðs sem hentar vel fyrir hvers kyns samkomur. Veislusalurinn á Center Hotels Plaza er frábær kostur fyrir þá sem vilja halda vandaða og eftirminnilega viðburði í einstöku umhverfi miðborgarinnar.
Centerhotel PLAZA
Það sem salurinn býður upp á
Veitingar og drykkir
- Veitingar · verður að panta hjá salnum
- Hressingar · verður að panta hjá salnum
- Áfengi · verður að panta hjá salnum
- Starfsfólk · salurinn útvegar
- Þrif · salurinn sér um þrif
- Áfengisleyfi
Aðstaða
- Hljóðkerfi
- Svið
- Útisvæði
- Inniaðstaða
Búnaður
- Matarílát
- Glerílát
- Borð
- Stólar
- Hljóðnemi
- Myndvarpi
- Skjár
Aðgengi
- Hjólastólaaðgengi
Auka eiginleikar
- Gisting í boði
Staðsetning
Umsagnir
Engar umsagnir enn
Vertu fyrst/ur til að deila reynslu þinni og hjálpa öðrum að taka betri ákvarðanir.
Allar myndir
Centerhotel PLAZA
