Fara í meginefni
Melda
12sæti
Tegund sals
FundarherbergiSalur
Hentar fyrir
AfmæliRáðstefnaPartýAnnað
Sætaskipan
Hefðbundið borðhaldStjórnarrými

Um salinn

Einkaherbergið hjá Finnsson í Kringlunni er glæsilegt og nútímalegt rými sem hentar einstaklega vel fyrir fundi, fermingarveislur, afmæli eða minni veislur. Rýmið státar af mikilli lofthæð og sérsmíðuðu 12 manna hringborði með snúningsplötu, sem gerir samskiptin bæði þægileg og skemmtileg. Á veggnum er nettengdur skjár sem auðvelt er að tengjast, auk fullkomins hljóðkerfis og stillanlegrar lýsingar sem tryggir réttu stemninguna við öll tilefni. Hægt er að draga fyrir gardínur til að njóta fullkomins næði. Gestum er boðið upp á ljúffengar veitingar og úrval af vönduðum vínum, með persónulegri þjónustu beint í rýmið. Einkaherbergið hefur sér inngang og næg bílastæði eru aðgengileg aftan við Kringluna, sem tryggir þægindi fyrir alla gesti. Ef gestafjöldinn eykst er hægt að opna yfir í Búbbluskálann og stækka þannig rýmið eftir þörfum.

Einkaherbergi Finnsson Kringlunni

Það sem salurinn býður upp á

Veitingar og drykkir

  • Veitingar · verður að panta hjá salnum
  • Hressingar · verður að panta hjá salnum
  • Áfengi · verður að panta hjá salnum
  • Starfsfólk · salurinn útvegar
  • Þrif · salurinn sér um þrif
  • Áfengisleyfi

Aðstaða

  • Bar
  • Hljóðkerfi
  • Ljósabúnaður
  • Bílastæði
  • Frítt að leggja
  • Inniaðstaða
  • Þráðlaust net

Búnaður

  • Matarílát
  • Glerílát
  • Borð
  • Stólar
  • Skjár

Aðgengi

  • Hjólastólaaðgengi

Ábendingar

Hægt að opna yfir í Búbbluskálann ef fjölgar í hópnum. Sér inngangur í rýmið.

Staðsetning

Upplýsingar um bílastæði

Næg bílastæði aftan við Kringluna

Umsagnir

Engar umsagnir enn

Vertu fyrst/ur til að deila reynslu þinni og hjálpa öðrum að taka betri ákvarðanir.