
Um salinn
Fundarsalirnir Hekla, Katla og Askja eru bjartir, rúmgóðir og vel útbúnir fundarsalir, staðsettir á jarðhæð CenterHotel Plaza við Ingólfstorg í hjarta Reykjavíkur. Hver salur er 50m² að stærð og býður upp á góða lýsingu, þægilega stóla og fyrsta flokks tækjabúnað sem hentar sérstaklega vel fyrir fundi. Salirnir eru útbúnir öflugu hljóðkerfi, ræðupúlti, skjávarpa og rafrænu skjávarpstjaldi. Þráðlaust internet er á svæðinu ásamt laser penna, blöðum og pennum fyrir kynningar og glósur. Gestir hafa aðgang að rúmgóðu móttökusvæði með bar aðstöðu fyrir fundarhlé, sem og afgirtu útisvæði með borðum og stólum – tilvalið til að njóta fersks lofts milli dagskrárliða. Hægt er að raða sölunum á fjölbreyttan hátt eftir þörfum, hvort sem um ræðir fundi, fyrirlestra, veislur eða móttökur. Hekla, Katla og Askja eru því kjörin valkostur fyrir fjölbreytt tilefni í miðborg Reykjavíkur.
Centerhotel PLAZA
Það sem salurinn býður upp á
Veitingar og drykkir
- Veitingar · verður að panta hjá salnum
- Hressingar · verður að panta hjá salnum
- Áfengi · aðeins salurinn — ekkert utanaðkomandi
- Starfsfólk · salurinn útvegar
- Þrif · salurinn sér um þrif
Aðstaða
- Bar
- Hljóðkerfi
- Ljósabúnaður
- Útisvæði
- Inniaðstaða
- Þráðlaust net
Búnaður
- Borð
- Stólar
- Hljóðnemi
- Myndvarpi
- Skjár
- Pennar & blöð
Aðgengi
- Hjólastólaaðgengi
Auka eiginleikar
- Gisting í boði
Staðsetning
Umsagnir
Engar umsagnir enn
Vertu fyrst/ur til að deila reynslu þinni og hjálpa öðrum að taka betri ákvarðanir.
Allar myndir
Centerhotel PLAZA
