Um salinn
Hótel Selfoss er mjög góð aðstaða til ráðstefnu og fundarhalds. Hótelið býður uppá fundarsali sem geta tekið allt að 350 manns í sæti og um 450 manns í standandi viðburði og móttökur. Salnum er einnig hægt að skipta upp í 3 minni fundarsali sem hentar vel þegar um vinnufundi er að ræða. Hótelið er vel tækjum búið með góðu hljóðkerfi fyrir tal og tónlist, skjávörpum, þráðlausum hljóðnemum og þægilegum stólum. Í salnum er svið og púlt fyrir ræðuhöld. Framan við salinn er bar og gott forrými með setustofu. Á hótelinu er gisting fyrir stóra hópa og einstök fyrsta flokks heilsulind snyrti og nuddstofa. Á Hótel Selfossi er glæsilegur veitingastaður, Riverside Restaurant, með stórfenglegu útsýni yfir Ölfusá og Ingólfsfjall.
Hótel Selfoss
Helstu kostir
Veitingar og drykkir
Aðstaða
Búnaður
Aðgengi
Auka eiginleikar
Allar myndir
Hótel Selfoss