Kastalinn
Kirkjustræti 2, 101 Reykjavík, Ísland
Um salinn
Kastalinn er sögufrægur salur á jarðhæð gamla Herkastalans við Kirkjustræti 2, þar sem Hjálpræðisherinn hélt samkomur með lúðraslætti, söng og ræðuhöldum. Salurinn setti sterkan svip á bæjarlífið í Reykjavík og sagan finnst þar enn í dag. Mikil lofthæð, parketlögð gólf og falleg vegglýsing gefa salnum hlýlegt og virðulegt yfirbragð, sem hentar jafnt veislum og menningarviðburðum. Gengið er beint inn í salinn frá Kirkjustræti, í miðbæ Reykjavíkur. Salurinn tekur allt að 100 manns í standandi veislur og viðburði og 80 í sitjandi borðhald. Þú ræður uppröðun borða og stóla: dekkað upp fyrir veislu, eða stólum raðað fyrir fyrirlestur eða menningarviðburð. Upphækkað svið nýtist vel fyrir ræðuhöld, tónlist, upplestur, fyrirlestra, uppistand og aðra sviðslist, og þar er jafnvel pláss fyrir litla hljómsveit. Í salnum er einnig upphækkað herbergi með sófa og hægindastólum sem er notalegt setusvæði. Lítið móttökueldhús, borðbúnaður og vínglös eru á staðnum, sem einfaldar undirbúning. Salurinn er leigður án veitinga, þannig að þú getur valið þína eigin veisluþjónustu. Hentar fyrir standandi veislur og opnanir, menningarviðburði, fermingarveislur og afmæli, einnig brúðkaupsveislur og erfidrykkjur. Hægt er að leigja salinn til klukkan 23:00.
Camelot ehf.
Það sem salurinn býður upp á
Veitingar og drykkir
- Veitingar · aðeins eigið
- Hressingar · aðeins eigið
- Áfengi · aðeins eigið
- Starfsfólk · eftir samkomulagi
- Þrif · þjónustuaðili sér um þrif
- Uppsetning og frágangur · eftir samkomulagi
Aðstaða
- Eldhús
- Ljósabúnaður
- Svið
- Inniaðstaða
- Fatahengi
- Búningsherbergi
Búnaður
- Hnífapör og diskar
- Glös
- Myndvarpi
Aðgengi
Fjöldi salerna: 2
Auka eiginleikar
- Gisting í boði
Umsagnir
Engar umsagnir enn
Vertu fyrst/ur til að deila reynslu þinni og hjálpa öðrum að taka betri ákvarðanir.
Camelot ehf.