Laugarneskirkja
Um salinn
Laugarneskirkja er stílhrein og falleg bygging, hönnuð af hinum þekkta arkitekt, Guðjóni Samúelssyni. Kirkjan er þekkt fyrir framúrskarandi hljómburð, þar sem hljóð berst auðveldlega frá hvelfingunni að aftasta bekk án notkunar hljóðnema. Orgel kirkjunnar, smíðað af Björgvini Tómassyni, er einstakt með 28 raddir og er þekkt fyrir fallegan og hljómmikinn tón. Kirkjan hefur 14 bekki sem rúma allt að 200 manns. Falleg dagsbirta flæðir um bygginguna, og stílhreinir hvítir veggir ásamt einstaklega fallegri þak hvelfingu skapa hlýlegt og umvefjandi andrúmsloft fyrir gesti viðburða. Framan við kirkjuna eru næg bílastæði og gott aðgengi að byggingunni. Á neðri hæð kirkjunnar er Safnaðarsalurinn, sem hentar fullkomlega fyrir veislur og tekur allt að 100 manns. Þar er einnig að finna fundarherbergi með sérinngangi, og auðvelt er að komast úr kirkjunni í Safnaðarsalinn. Laugarneskirkja er einstakur vettvangur fyrir tónleika, menningarviðburði, brúðkaup og kirkjulegar athafnir. Kirkjan er einnig kjörin fyrir upptökur á tónlist, söng og guðsþjónustum.
Skráðu þig til að lesa meira...
Helstu eiginleikar
Hafðu samband við þennan sal
Skráðu þig til að skoða allar upplýsingar og hafa samband við eigandann.
- ✓Sjáðu allar myndir og upplýsingar
- ✓Hafðu samband beint við eiganda
- ✓Sendu fyrirspurn um bókun
Ertu nú þegar með aðgang? Skráðu þig inn
Viltu skoða þennan sal nánar?
Skráðu þig ókeypis til að sjá allar upplýsingar, myndir og hafa samband við eigandann.
Skráðu þig núna - ókeypis