Fara í meginefni
Melda
80sæti
Tegund sals
SalurFundarherbergi
Hentar fyrir
BrúðkaupAfmæliFermingÁrshátíðRáðstefnaPartýNámskeið
Sætaskipan
Hefðbundið borðhald

Um salinn

Ness salurinn í húsi golfklúbbsins á Seltjarnarnesi er fallegur, nýuppgerður salur á einstökum stað með útsýni yfir náttúru Gróttutanga. Húsið er staðsett á sunnanverðum Gróttutöngum á Seltjarnarnesi, aðeins örfáar mínútur frá miðbæ Reykjavíkur, sem gerir aðgengi einstaklega þægilegt. Salurinn rúmar allt að 80 manns til borðs og býðst bæði með eða án veitinga. Hægt er að raða borðum á fjölbreyttan hátt eftir fjölda gesta og þeirri stemningu sem óskað er eftir fyrir viðburðinn. Í salnum er glæsilegur bar til að bera fram drykki, auk góðrar aðstöðu fyrir framsetningu á veitingum. Einnig gefst gestum kostur á að kaupa matarveitingar og drykki beint af barnum sé þess óskað. Beint framan við salinn er rúmgóð verönd sem hægt er að ganga út á, fullkomin fyrir móttökur eða til að njóta útsýnisins. Næg bílastæði eru við húsið og því auðvelt fyrir gesti að koma og fara. Ness salurinn hentar einstaklega vel fyrir árshátíðir, afmæli, fyrirtækjaveislur, brúðkaup, fermingarveislur, fundi, námskeið og kennslu. Athugið að salurinn er eingöngu leigður út yfir vetrartímann.

Ness veislusalur og fundarsalur

Það sem salurinn býður upp á

Veitingar og drykkir

  • Veitingar · salurinn eða eigið
  • Hressingar · salurinn eða eigið
  • Áfengi · salurinn eða eigið
  • Starfsfólk · gestgjafi útvegar sjálfur
  • Þrif · gestgjafi þrífur sjálfur

Aðstaða

  • Bar
  • Hljóðkerfi
  • Bílastæði
  • Frítt að leggja
  • Útisvæði
  • Inniaðstaða

Búnaður

  • Matarílát
  • Borð
  • Stólar

Aðgengi

  • Hjólastólaaðgengi

Ábendingar

Salurinn er aðeins leigður út yfir vetrartímann.

Staðsetning

Upplýsingar um bílastæði

Næg bílastæði

Umsagnir

Engar umsagnir enn

Vertu fyrst/ur til að deila reynslu þinni og hjálpa öðrum að taka betri ákvarðanir.