Um salinn
Sólvogur er hlýlegur og fallegur veislusalur staðsettur við Fossvoginn í Reykjavík. Salurinn rúmar um 60 gesti í sæti og hentar einstaklega vel fyrir fjölbreytt tilefni eins og fermingarveislur, skírnarveislur, erfidrykkju, útskriftarveislur, smærri brúðkaupsveislur og afmæli. Einnig er Sólvogur frábær kostur sem fundarsalur fyrir húsfundi, námskeið eða kennslu. Salurinn snýr til suðurs og nýtur fallegrar birtu með aðgangi að verönd og grasflöt. Hægt er að opna út á veröndina og njóta útivistar þegar veður leyfir. Í salnum er að finna opið móttökueldhús með öllum helstu heimilistækjum og borðbúnaði, lítið hljóðkerfi fyrir tónlist og hljóðnema, píanó, skjá á hjólum, sófahorn og fatahengi. Veislum skal vera lokið fyrir klukkan 23:00.
Sólvogur
Það sem salurinn býður upp á
Veitingar og drykkir
- Veitingar · aðeins eigið
- Hressingar · aðeins eigið
- Áfengi · aðeins eigið
- Starfsfólk · salurinn útvegar
- Þrif · salurinn sér um þrif
Aðstaða
- Eldhús
- Hljóðkerfi
- Bílastæði
- Frítt að leggja
- Útisvæði
- Inniaðstaða
- Fataskápur
Búnaður
- Matarílát
- Glerílát
- Borð
- Stólar
- Borðdúkar
- Hljóðnemi
- Skjár
- Píanó
Umsagnir
Engar umsagnir enn
Vertu fyrst/ur til að deila reynslu þinni og hjálpa öðrum að taka betri ákvarðanir.
Sólvogur