Um salinn
Sviðið er glæsilegur viðburðarsalur staðsettur á frábærum stað eða í miðbænum á Selfossi. Þetta sérhannaða rými er fullkomið fyrir tónleikahald og veislur, svo og fundi og mannfagnaði. Salurinn býður upp á fjölbreytta möguleika, með pláss fyrir allt að 110 manns í sitjandi borðhald og allt að 300 manns í standandi veislum og viðburðum. Fyrir smærri veislur er mögulegt að raða 4-6 manna borðum fyrir 140 manns, sem hentar vel fyrir smáréttaveislur. Sviðið er glæsilega hannað og vel búið tæknibúnaði, þar sem hljóðvistin er framúrskarandi. Vandaður ljósabúnaður, myndvarpar og sýningartjöld skapa rétta stemningu fyrir hvaða tilefni sem er. Aðgengi að salnum er mjög gott, með stórt bílastæði að baki og aðgengi fyrir hjólastóla. Salurinn er leigður út fyrir hvers kyns veislur og viðburði, með skemmtanaleyfi til klukkan 03:00. Vínveitingar eru í boði og hægt er að fá mat framreiddan af veisluþjónustum í miðbænum. Sviðið er kjörinn staður fyrir tónleikahald, menningarviðburði, árshátíðar, dansleiki, brúðkaup og fyrirtækjaferðir. Jafnframt er það fullkomin aðstaða fyrir fundi, ráðstefnur, námskeið, fyrirlestra og fundi.
Sviðið Selfossi
Helstu kostir
Veitingar og drykkir
Aðstaða
Búnaður
Aðgengi
Auka eiginleikar
Staðsetning
Stórt bílastæði fyrir aftan þar sem fyrstu tveir tímarnir eru fríir, eftir það er hægt að leggja í appinu hjá Parka.
Allar myndir
Sviðið Selfossi