Um salinn
Veislusalur ÍR er rúmgóður og vel búinn salur, staðsettur að Skógarseli 12 – aðeins örfáum skrefum frá Mjóddinni í Reykjavík. Salurinn tekur þægilega allt að 80 gesti í sæti, með nægu plássi fyrir veisluföng, myndabox, skemmtikrafta og dansgólf. Aðkoman er góð og næg bílastæði eru við húsið. Salurinn er á annarri hæð með lyftu og býður upp á fallegt útsýni yfir Íþróttaleikvang ÍR. Gluggatjöld gera mögulegt að draga fyrir glugga að hluta eða alveg, eftir þörfum. Útgengt er á rúmgóðar svalir sem snúa að íþróttasvæðinu og þar er hægt að njóta útigrills, sem hægt er að leigja. Í anddyri er notaleg setustofa með leðursófa og gott fatahengi. Innandyra eru svartir stólar og 18 borð sem hægt er að raða upp á fjölbreyttan hátt, allt eftir óskum. Borðin þarf að dúka fyrir notkun og dúkar fylgja ekki með. Eldhúsaðstaðan var nýlega endurnýjuð og þar er að finna tvo stóra ísskápa, tvo drykkjarkæla, lítinn frysti, tvo ofna, iðnaðaruppþvottavél, góð vinnuborð, staka hitahellu og örbylgjuofn. Einnig fylgir leirtau, hnífapör, glös og diskar með leigunni. Opið er úr eldhúsinu inn í salinn með barborði sem hentar vel fyrir framreiðslu veitinga. Auka borð eru einnig til staðar fyrir veitingar í salnum. Í salnum er vandað Bose Professional hljóðkerfi með sex hátölurum og þráðlausum hljóðnema frá Audio-technica. Einnig er hægt að leigja auka soundbox fyrir stórar tónlistarveislur. Salurinn er búinn ræðupúlti, myndvarpa og sýningartjaldi. Veislusalur ÍR er tilvalinn fyrir brúðkaup, fermingarveislur, útskriftir, afmæli, fyrirtækjaskemmtanir, þorrablót og haustfagnaði. Einnig hentar salurinn mjög vel fyrir fundi, námskeið og fyrirlestra. Hér færð þú fjölbreytta möguleika í notalegu og glæsilegu umhverfi.
Veislusalur ÍR
Það sem salurinn býður upp á
Veitingar og drykkir
- Veitingar · aðeins eigið
- Hressingar · aðeins eigið
- Áfengi · aðeins eigið
- Starfsfólk · gestgjafi útvegar sjálfur
- Þrif · gestgjafi þrífur sjálfur
Aðstaða
- Eldhús
- Bar
- Uppþvottavél
- Hljóðkerfi
- Dansgólf
- Bílastæði
- Frítt að leggja
- Útisvæði
- Inniaðstaða
- Fataskápur
Búnaður
- Matarílát
- Glerílát
- Borð
- Stólar
- Hljóðnemi
- Myndvarpi
- Skjár
Aðgengi
- Hjólastólaaðgengi
- Lyfta
Ábendingar
Leigutaki þarf að vera a.m.k. 25 ára.
Umsagnir
Engar umsagnir enn
Vertu fyrst/ur til að deila reynslu þinni og hjálpa öðrum að taka betri ákvarðanir.
Veislusalur ÍR