Um salinn
SKÁLINN í Gufunesi er fullkominn staður fyrir stærri veislur og viðburði sem krefjast næði. Þrátt fyrir næði sitt er staðurinn aðeins nokkurra mínútna akstur frá miðbæ Reykjavíkur. Staðsetningin í nýjasta hverfi Reykjavíkur - Gufunesi - þar sem suðupottur íbúða og skapandi fyrirtækja, kvikmyndavera og listamanna skapar einstakt andrúmsloft. Salurinn er sveigjanlegur í stærð (hægt að minnka/stækka eftir fjölda gesta), rúmgóður og getur tekið á móti frá 20 - 200 manns manns í sitjandi, 300 í standandi - og allt þar á milli. Fjölhæfni salarins er mikil, þar sem hægt er að skipuleggja hann á margvíslegan hátt eftir tilefni. Salurinn hentar líka vel fyrir tónleika og menningarviðburði er möguleiki á að stilla upp dansgólfi og færanlegu sviði. Salurinn býður einnig upp á rúmgott anddyri með fatahengi og góðan bar sem hentar vel til að bera fram vínveitingar. Hið fjölbreytta rými er tilvalið bæði fyrir smærri og stærri hópa og býður upp á sveigjanlega möguleika til að koma með eigin veitingar eða nýta veislueldhúsið á staðnum. SKÁLINN GUFUNESI er sérlega heppileg fyrir afmæli, árshátíðar, skólaböll, menningarviðburði, tónleika og uppistand. Þessi staður er sannarlega einstakur valkostur fyrir alla sem vilja halda eftirminnilegan viðburð í skapandi umhverfi.
ViðburðaVerksmiðjan
Helstu kostir
Veitingar og drykkir
Aðstaða
Búnaður
Aðgengi
Auka eiginleikar
Staðsetning
Stórt plan fyrir framan húsið sem hýsir allt að 80 bíla. Fleiri stæði í nágrenninu
Allar myndir
ViðburðaVerksmiðjan