Fara í meginefni
Melda
Til baka í greinar
tungumálþýðingarstarfsmannaviðburðirfyrirtækjaviðburðirárshátíðviðburðastjórnun

Viðburður á fleiri en einu tungumáli

Gestirnir tala ólík tungumál, en skipulagið þarf bara að vera eitt. Þýddu upplýsingar um viðburðinn í Meldu og haltu öllum svörunum saman á einum gestalista.

4 mín lesturVölundurRead in English
Tveir samstarfsfélagar hlæja saman yfir kaffi og kleinum í mötuneyti á dimmu vetrarsíðdegi; í bakgrunni hellir þriðji sér kaffi í lopapeysu

Við höldum viðburði til að koma fólki saman. Árshátíðin gefur samstarfsfólki tækifæri til að hittast utan vinnunnar, í brúðkaupi kynnast tvær fjölskyldur og á ráðstefnu hittist fólk sem hefur eitthvað að læra hvert af öðru. Við veljum staðinn, hugsum um matinn og röðum dagskránni með þetta í huga.

En upplifun gestsins byrjar áður en hann gengur inn í salinn. Hún byrjar á boðinu. Þar á hann að geta áttað sig á því hvað stendur til, hverju er boðið upp á og hverju hann þarf að svara.

Þegar gestirnir tala ólík tungumál þarf boðið að taka mið af því líka.

Sama boð getur verið misskýrt

Hugsum okkur árshátíð á vinnustað þar sem töluð er íslenska, enska og pólska. Þú hefur lagt vinnu í fallegt boð, lýst kvöldinu og sett inn spurningar um mat og maka. Fyrir þann sem les íslensku reiprennandi er allt til staðar.

Samstarfsfélagi sem er að læra málið þarf kannski að lesa textann nokkrum sinnum. Hann skilur að það sé árshátíð, en er ekki alveg viss um hvort makinn megi koma, hvort greiða þurfi fyrir rútuna eða hvernig eigi að skrá mataróskir.

Hann gæti fengið vinnufélaga til að útskýra, sent þér spurningu eða beðið með að svara. Þú veist þá ekki endilega hvort hann sé enn að ákveða sig eða vanti einfaldlega skýrari upplýsingar. Fyrir gestinn skiptir hins vegar máli að geta lesið boðið af öryggi og svarað fyrir sig á eigin forsendum. Þetta er mikilvægt atriði í inngildingu.

Mörg tungumál fyrir sama viðburðinn

Þarna hjálpar Melda. Þú getur boðið gestum að lesa upplýsingar um viðburðinn á fleiri en einu tungumáli og haldið öllum svörunum saman á einum gestalista.

Þú skrifar lýsinguna, spurningarnar og dagskrána á þínu móðurmáli. Síðan velur þú önnur tungumál og bætir við sjálfvirkum þýðingum. Gesturinn velur sitt tungumál efst á skráningarsíðunni og fær upplýsingarnar á því máli.

Spurningin um makann er enn sama spurningin, þótt einn gestur lesi hana á íslensku og annar á pólsku. Mataróskirnar safnast á sama stað og þú vinnur áfram með sama gestalistann. Þú þarft ekki að búa til sérstakan viðburð eða skráningarsíðu fyrir hvert tungumál. Þú þarft ekki heldur að setja línu efst í viðburðartextann sem segir ENGLISH BELOW.

Þýðingarnar ná líka til titils viðburðarins, heitis staðsetningar, svarmöguleika, algengra spurninga og skilmála. Þannig getur gesturinn fengið samhengi kvöldsins á sínu máli, frá lýsingunni á boðinu að dagskránni sem hann fylgir.

Þú þekkir gestina og átt síðasta orðið

Þú velur tungumálin eftir því hverjum þú ert að bjóða. Enska og pólska eru meðal valkostanna, en þú getur líka bætt við til dæmis portúgölsku, spænsku, þýsku, frönsku eða úkraínsku.

Melduviðmótið sjálft er á íslensku, ensku og pólsku. Á öðrum tungumálum lesa gestir þýdda viðburðatextann, en hnappar og merkingar eru á ensku.

Þú getur þýtt textann eða fengið gervigreind til að gera fyrstu útgáfu. Frumtextinn og þýðingin birtast hlið við hlið svo þú eða einhver sem kann málið getið farið yfir orðalagið. Þýðingar yfir á íslensku eru skrifaðar handvirkt.

Gervigreindarþýðingar birtast gestum þegar þær eru tilbúnar, svo gott er að ljúka yfirferðinni áður en boðin fara út. Þýðingar sem þú hefur breytt og vistað varðveitast þegar gervigreindin er notuð aftur. Ef frumtextinn breytist merkir Melda hvað þarf að yfirfara.

Þú byrjar undir Tungumál gesta á yfirliti viðburðarins. Þar velur þú málin, vinnur þýðingarnar og ferð yfir þær. Skoðaðu svo skráningarsíðuna á hverju máli áður en þú sendir boðið.

Eitt skipulag sem nær til fleiri

Förum aftur að árshátíðinni. Sami samstarfsfélagi opnar nú boðið á pólsku. Hann getur séð að makinn sé velkominn, athugað smáatriðin og svarað spurningunum um mat. Þú færð svörin á sama lista og svör allra hinna.

Þetta er ávinningurinn: gestirnir eiga auðveldara með að skilja boðið og taka þátt, og þú eyðir minni vinnu í að halda utan um margar útgáfur og útskýra sömu atriðin aftur og aftur.

Hvort sem þú ert að skipuleggja starfsmannaviðburð, brúðkaup eða ráðstefnu getur þú stofnað viðburð í Meldu og valið tungumálin sem henta þínum gestum.

Það eru allir velkomnir, á sínum forsendum. Er það ekki?

Melda bloggið

Ráð, leiðbeiningar og nýjungar fyrir viðburði

Tilbúin í að byrja?

Búðu til viðburð í Melda á augnabliki.

Búa til viðburðRead in English