Fara í meginefni
Melda
Nýtt frá Melda

Breyttu skjánum í
lifandi myndavegg

Gestir skanna QR-kóða og myndir, myndbönd og kveðjur þeirra birtast á skjávarpa eða sjónvarpi í rauntíma. Ekkert app, engin innskráning — bara nokkrar sekúndur.

Frítt að byrjaEkkert app, engin innskráningÍslenskt frá grunni
Prófaðu

Prófaðu myndavegginn

Veldu mynd í símanum og horfðu á hana fljúga á vegginn — alvöru veggurinn, engin uppsetning og ekkert vistað.

Á skjánum

Besta partí ársins, klárlega ✨

Birta

Takk fyrir okkur ❤️

Mamma

Til hamingju! Þetta var ógleymanlegt kvöld 🎉

Sigrún
Yngvi
Yngvi
Katla
Katla
Skál
Hugi
Hugi
Ragna
Ragna
Sól
Sól
Pétur
Pétur
Védís
Védís
Myndataka
Ómar
Ómar
Inga
Inga
Daníel
Daníel
Kakan
Halla
Halla
Stefán
Stefán

Anna & Gunnar

24 myndir · Skannaðu til að deila mynd

Melda

Veggurinn nýtur sín best á stórum skjá

Síminn þinn

Anna & Gunnar

Settu mynd á vegginn

24 myndir á veggnum

Sendu viðbragð á vegginn

Bættu nafninu þínu til að senda viðbragð

Myndir birtast sjálfkrafa á veggnum

Melda

Viltu kafa dýpra? Lestu greinina um myndavegginn

Ömmu-prófið

Svo einfalt að allir í salnum geta verið með

Ekkert niðurhal, engin innskráning, ekkert OTP. Afi og amma skanna QR-kóðann og myndin er komin á tjaldið eftir nokkrar sekúndur.

Skannaðu QR-kóða

QR-kóðinn er á skjávarpa eða prentaður á borðspjöld. Gestir skanna með símanum sínum og lenda beint á myndavélarsíðu.

Ekkert app vesen

Síðan opnast beint í vafranum — ekkert að sækja, ekkert að skrá sig inn. Síminn þeirra er myndavélin.

Birtist í rauntíma

Myndir birtast á skjánum innan fárra sekúndna. Allir sjá veisluna gerast í beinni á stóra tjaldinu.

Sendu á hvaða skjá sem er

Opnaðu vegginn með hlekk og varpaðu á skjávarpa, sjónvarp eða stóran skjá. Veggurinn fer í loftið þegar þú opnar hann.

Allir gestir, alls staðar

Myndir, myndbönd og kveðjur — ekki bara eitt horn

Gleymdu myndakassanum í horninu og röðinni sem myndast. Hver einasti gestur er með myndavél í vasanum og fangar augnablik sem enginn ljósmyndari nær.

Myndir frá öllum símum

Líka iPhone HEIC-myndir. Gestir velja myndir, fá að skoða þær og senda — ekkert birtist fyrr en þeir ýta á senda.

Stutt myndbönd

Skál, dansgólf eða óvænt augnablik. Myndböndin spilast á veggnum, sama hvaða útlit þú velur.

Kveðjur á tjaldið

Fyrir þá sem taka engar myndir — skrifaðu kveðju sem birtist á veggnum. Stafræn gestabók sem allir sjá.

Byrjaðu fyrir veisluna

Kveiktu á veggnum fyrirfram og gestir sjá hann á eigin gestasíðu — þeir geta sent inn myndir áður en þeir mæta og veggurinn er lifandi þegar veislan byrjar.

Þú stjórnar

Þú ræður hverju birtist og hvenær

Sjálfgefið birtast myndir strax — eða kveiktu á handvirkri yfirferð og samþykktu hverja mynd fyrst. Allt er undir þér komið.

Sjálfvirk birting

Sjálfgefið birtast myndir strax á veggnum um leið og gestir senda þær — ekkert vesen, veislan heldur áfram af sjálfu sér.

Handvirk yfirferð

Viltu hafa stjórn? Kveiktu á yfirferð og þá samþykkir þú hverja mynd, myndband og kveðju áður en hún birtist á veggnum.

Nafn fylgir hverri mynd

Nafn sendandans birtist með hverri mynd. Það heldur öllu kurteisu — og kemur í veg fyrir að ókunnugir þykist vera einhver annar.

Frysta vegginn

Einn rofi sem stöðvar bæði innsendingar og vegginn samstundis — fullkomið ef þú vilt hlé eða grípa inn í.

Þú heldur öllu

Allar myndir og myndbönd eru þín eftir veisluna

Þegar gleðinni lýkur situr þú uppi með heilt safn — séð frá öllum sjónarhornum gestanna, ekki bara einum ljósmyndara.

Sæktu allt í einu

Eftir viðburðinn sækir þú allar myndir og öll myndbönd sem gestir sendu — á einum stað, tilbúin til niðurhals.

Full upplausn

Í greiddum pökkum sækir þú myndir í upprunalegum gæðum — tilbúnar til prentunar og varðveislu.

Þitt eigið útlit

Settu þitt eigið merki og lit á vegginn í stað merkis Melda — fullkomið fyrir brúðkaup og fyrirtækjaviðburði.

Hentar hverju tilefni

Brúðkaup, ferming, stórafmæli, árshátíð eða útskrift — sami lifandi myndaveggurinn passar öllum veislum.

Frá uppsetningu að niðurhali

Tilbúið á örfáum mínútum

  1. 1

    Kveiktu á myndaveggnum

    Opnaðu viðburðinn þinn í Melda og kveiktu á myndaveggnum á nokkrum sekúndum. Veldu útlitið sem passar veislunni.

  2. 2

    Veldu birtingu

    Myndir birtast sjálfkrafa á veggnum — eða kveiktu á handvirkri yfirferð ef þú vilt samþykkja hverja mynd áður en hún birtist.

  3. 3

    Varpaðu á skjáinn

    Opnaðu vegginn með hlekk og varpaðu honum á skjávarpa, sjónvarp eða stóran skjá í salnum.

  4. 4

    Láttu gesti skanna

    Sýndu QR-kóðann á tjaldinu eða prentaðu hann á borðspjöld. Gestir skanna og senda myndir, myndbönd og kveðjur.

  5. 5

    Sæktu allt eftir á

    Þegar veislunni lýkur sækir þú allar myndir og myndbönd sem gestir sendu — heilt safn til að geyma.

Frítt að byrja

Byrjaðu frítt, stækkaðu þegar þú þarft

Ókeypis útgáfan inniheldur 100 myndir, 10 myndbönd, 14 daga geymslu og 2 útlit. Greiddu pakkarnir, Sísið og Bláa stálið, bæta við fleiri myndum og myndböndum, lengri geymslu, niðurhali í upprunalegum gæðum, þínu eigin merki og lit í stað merkis Melda — og öllum sex útlitunum.

Byrjaðu frítt
Algengar spurningar

Allt sem þú þarft að vita um myndavegginn

Svör við því sem fólk spyr oftast um lifandi myndavegg.

Breyttu skjánum í lifandi myndavegg

Kveiktu á myndaveggnum á nokkrum sekúndum, varpaðu honum á tjaldið og leyfðu gestunum að fylla veisluna af myndum, myndböndum og kveðjum. Frítt að byrja.