Raðaðu gestum til borðs
á augnabliki
Veldu borðagerðir, gefðu þeim sérsniðin nöfn, raðaðu gestum til borðs og prentaðu borðaskipan og nafnspjöld — allt á íslensku.
Sætaskipan í einföldum
Frá tómum borðum að fullbúnu borðaskipani á örfáum mínútum.
Búðu til borð
Veldu tegund borðs, gefðu því nafn og stilltu fjölda sæta. Notaðu flýtiuppsetningu til að búa til mörg borð í einu.
FljótlegtRaðaðu gestum
Dragðu gesti beint af gestalistanum á borð. Sjáðu í einu hversu mörg sæti eru laus.
Dragðu og slepptuFínstilltu
Endurraðaðu gestum milli eða innan borða eða leyfðu gestum að velja sér borð sjálfir.
Þú ræðurPrentaðu
Prentaðu borðaskipan (A1/A2), nafnspjöld eða gestalista eftir borðum til að hafa við höndina.
TilbúiðVeldu borðagerðir og gefðu þeim nöfn
Veldu tegund borðs, gefðu hverju borði sérsniðið nafn og stilltu fjölda sæta — þú ræður þessu öllu.
- Gefðu borðum eigin nöfn sem henta þínum viðburði
- Veldu úr fleiri borðagerðum og stilltu fjölda sæta
- Flýtiuppsetning til að búa til mörg borð í einu
- Afritaðu borð til að spara tíma við uppsetninguna
Sætaskipan
Sérsniðin borðanöfn
Borðaskipan
Raðaðu gestum til borðs á augnabliki
Einfalt viðmót þar sem þú dregur gesti af gestalistanum og sleppir á borð. Sjáðu hversu mörg sæti eru laus og hvar gestir sitja — allt í rauntíma.
- Dragðu gesti á milli borða eða aftur á gestalistann
- Góð yfirsýn yfir gesti sem eru enn óráðstafaðir
- Læstu borðum eins og heiðursborðum og VIP-sætum þegar gestir mega velja sjálfir
Meira en bara borðaskipan
Sjálfsval gesta, prentun, læsing borða og tenging við gestalistann — allt á einum stað.
Sjálfsval gesta
Leyfðu gestum að velja sér borð á eigin gestasíðu. Settu frest, sýndu nöfn og stjórnaðu hvaða borð eru opin.
Læstu borðum
Læstu borðum til að koma í veg fyrir sjálfsval eða óviljandi breytingar. Fullkomin stjórn á heiðursborðum og VIP-svæðum.
Prentaðu allt
Prentaðu borðaskipan (A1/A2 veggspjald), nafnspjöld fyrir hvern gest, gestalista í stafrófsröð eða lista eftir borðum eða exportaðu í Excel og gerðu þetta eftir þínu höfði.
Tengt við gestalistann
Sætaskipan tengist beint við gestalistann og meldingar. Þegar gestur meldir sig birtist hann sjálfkrafa á listanum.
Algengar spurningar
Ert þú að fara að raða gestum til borðs?
Búðu til viðburð, bættu við borðum og raðaðu gestum til borðs.