
Um salinn
Bjartur og glæsilegur salur á 8. hæð Hörpu býður upp á stórkostlegt útsýni yfir vesturborgina, höfnina, Faxaflóann og fjallahringinn. Salurinn er 200 m² að stærð og rúmar allt að 100 gesti, hvort sem um er að ræða standandi eða sitjandi viðburði. Hægt er að stilla upp 8–10 borðum fyrir átta manns hvert, allt eftir því hvort svið er sett upp eða ekki. Aðgangur að salnum er greiður með lyftu frá starfsmannagangi á 1. hæð eða í gegnum Björtuloft. Salurinn hentar einnig einstaklega vel sem stækkun á Björtuloftum fyrir stærri viðburði. Í salnum eru hátalarar og tengibúnaður fyrir talað mál og létta tónlist, auk þess sem hægt er að bæta við hljóðkerfið eftir þörfum. Hljóðvistin er góð innan rýmisins, en hljóð getur borist milli hæða við glerhjúpinn. Í vesturenda salarins er stórt sýningartjald og skjávarpi sem gera rýmið sérlega hentugt fyrir fjölbreytta viðburði. Salurinn er kjörinn fyrir hanastél, fundi eða hvers kyns móttökur þar sem glæsilegt umhverfi og einstakt útsýni skipta máli.
Harpa
Það sem salurinn býður upp á
Veitingar og drykkir
- Veitingar · verður að panta hjá salnum
- Hressingar · verður að panta hjá salnum
- Áfengi · verður að panta hjá salnum
- Starfsfólk · salurinn útvegar
- Þrif · salurinn sér um þrif
Aðstaða
- Bar
- Hljóðkerfi
- Svið
- Inniaðstaða
Búnaður
- Hljóðnemi
- Myndvarpi
- Skjár
Aðgengi
- Hjólastólaaðgengi
- Lyfta
Staðsetning
Umsagnir
Engar umsagnir enn
Vertu fyrst/ur til að deila reynslu þinni og hjálpa öðrum að taka betri ákvarðanir.
Allar myndir
Harpa
Aðrir salir frá þessum aðila


Harpa Kaldalón

Harpa Norðurljós

Harpa Eldborg

Harpa Fundarherbergi

Harpa Silfurberg
