Ímyndaðu þér að þú sért að setja upp gjafalista fyrir brúðkaupið þitt. Þú ferð á netið og finnur það sem þig langar í, afritar slóðina á vöruna í netverslun og límir inn í gjafalistann. 2 sekúndum seinna er Melda búin að vista gjöfina á listann, sækja mynd og verð og setja gjöfina fallega upp svo boðsgestirnir þínir geti tekið gjöfina frá.
Gestirnir vilja að gjöfin þeirra hitti beint í mark. Gestgjafinn getur hjálpað gestunum með þessari einföldu tækni sem sparar tíma og minnkar álag á gestina þína! Þeir smella bara á linkinn, kaupa vöruna og fá hana senda heim til sín!
Já, þetta er svona einfalt
Það er eiginlega ekkert hægt að gera þetta á einfaldari máta. Þú bara finnur vörur á netinu og límir slóðirnar á þær inn í gjafalistann. Gestirnir ákveða svo hvað þeir gera, og þeir geta slegið saman í gjafir ef þig langar í rándýra hrærivél eða hljómtæki.
Þú getur líka sett inn óljósar óskir eins og málverk í stofuna, pening í ferðasjóð, óvissuferð á hótel — eða hvað annað sem þig langar í.
Engin binding við eina verslun, engin handvirk innsláttarvinna. Þegar listinn er tilbúinn sjá gestirnir fallega uppsetta og einfalda framsetningu á gjöfum með myndum og verðum. Þeir smella á „Taka frá" og gjöfin er merkt frátekin. Enginn sér hver tók frá, ekki einu sinni gestgjafinn.
Prófaðu — taktu frá gjöf, skoðaðu vefsíðu búðarinnar og prófaðu að hætta við og velja aðra
Gjafalisti
Skoðaðu gjafalistann, taktu frá gjafir og sjáðu hvernig gjafir færast á milli hluta.
Gjafalisti gestgjafa
2 af 8 gjöfum fráteknar
Gjafahugmyndir í boði
Langar þig að búa til gjafalista fyrir þinn viðburð? Búðu til viðburð á 2 mínútum →
Hvernig virkar þetta
- Límdu tengil, allt fyllist inn. Afritaðu vörutengil og límdu í Melda. Gervigreind les alla síðuna. Hún dregur út vöruheiti, aðalmynd, verð og lýsingu. Hún ræður við alla gjaldmiðla. Ef kerfið nær ekki einhverju sérðu tóman reit og getur slegið inn það sem vantar. Virkar með hvaða vefverslun sem er.
- Falleg vöruframsetning. Gestir sjá gjafalistann sem safn korta með vörumyndum, verðum og stöðu. Ekkert Excel-moð og ekkert Google Docs. Þetta lítur út eins og alvöru vefverslun.
- Taka frá með einum smell, enginn veit. Gestur smellir á „Taka frá" og gjöfin er hans. Aðrir sjá að hún er frátekin en ekki af hverjum. Ekki einu sinni gestgjafinn fær að vita.
- Margt af sama hlut. Óskast fleiri en einn: „5 kertastjakar". Tveir gestir taka frá og Melda sýnir „2 af 5 frátekið".
- Dragðu til að raða. Mikilvægustu óskirnar efst. Dragðu á sinn stað.
- Aðeins gestir sem mæta. Bara þeir sem hafa meldað sig og sagt já geta tekið frá. Enginn utanaðkomandi getur komist inn á gjafalistann.
- Ítarlegri upplýsingar. Gestgjafinn bætir við „Skóstærð 42" eða „Helst í bláum lit".
Hvernig á að byrja
- Stofnaðu viðburð í Melda og bættu gestum við eða sendu þeim tengil með spjallforriti.
- Opnaðu gjafalistann og límdu fyrsta vörutengilinn. Horfðu á titilinn, myndina og verðið birtast sjálfkrafa.
- Haltu áfram að líma. Bættu við eins mörgum gjöfum og þú vilt úr hvaða verslun sem er. Raðaðu eftir forgangi og bættu við lýsingum ef þarf.
- Gestirnir sjá listann á gestasíðunni sinni um leið og þeir hafa meldað sig. Þeir velja, taka frá, og þú færð gjöf sem þú vildir.
- Ertu búin(n) að bjóða gestunum? Þú getur búið til gjafalistann og tilkynnt gestunum um það með því að skrifa póst á viðburðinn. Allir meldaðir gestir fá tilkynningu í tölvupósti.
Ef þú ert tilbúin(n) að búa til gjafalista fyrir næsta viðburð, stofnaðu viðburð í Melda — það tekur tvær mínútur.








