„Við verðum endilega að fara að hittast sem fyrst.“ „Já, finnum tíma og gerum eitthvað geggjað.“
Þessi orð bergmála um allan bæ á hverjum degi. Svo líða vikurnar og árin og gamli vinahópurinn hefur ekki náð tökum á því að skipuleggja sig í nokkur ár.
Það vantar ekki viljann til að hittast. En það er bara smá vesen að finna dag. Samtalið getur orðið óþægilegt ef einhver kemst ekki og þá byrjar fólk að fletta upp í dagatölum, stinga upp á dögum sem enginn annar kemst. Sá sem stingur upp á og býður í veisluna missir tökin, og allt í einu þarf að sleppa því að mæta á bekkjarkvöld því að ekkert annað kvöld fannst. Vesen.
Allir vita að það er hægt að nota tölvur til að leysa þetta mál, og núna geturðu sent vinum þínum hlekk á viðburð í Meldu og boðið upp á val um nokkra daga. Þú setur fram boð með tillögum og gestirnir kjósa um tíma. Eins og segir í þulunni góðu: Komi þeir sem koma vilja geta.
Alveg eins og Ágúst Bent, þá elskar Melda fólk. Fólk sem hittist og ræktar sambönd og vináttu á jákvæðan og bjóðandi máta.
Í „Finnum daginn“ haka vinirnir við þá daga sem þeir komast, en þú velur daginn út frá þeim upplýsingum.
Hvað hentar hópnum?
Pizzukvöld eða bústaður? Þú leggur til dagana og sérð hver kemst hvenær. Svör og athugasemdir birtast jafnóðum. Engin samantekt upp úr Messenger-grúppunni sem fjallar btw líka um bæjarpólitík og sögur úr raunhagkerfinu.
Þarf einhver að athuga vaktaplanið og ákveða seinna? Ekkert mál. Það má svara „kannski“ og breyta svarinu meðan „Finnum daginn“ er í gangi.
Prófaðu hér fyrir neðan. Hakaðu við daga, veldu „kannski“ og skiptu um skoðun. Þetta er bara sýnidæmi. Ekkert svar er sent.
Finnum daginn
Prófaðu að merkja við daga og breyta valinu.
Hvaða dagar henta þér?
Svörin fylgja með
Þegar þú velur daginn verður viðburðurinn til í Meldu. Þau sem komast eru þegar á gestalistanum og kannski-svörin fylgja líka. Þú þarft ekki að spyrja alla aftur.
Þú getur líka sett mynd á könnunina. Hún birtist með hlekknum í Messenger-grúppunni og verður svo mynd viðburðarins. Nafnið og lýsingin fylgja með. Ekkert þarf að skrifa upp á nýtt.
Næsti hittingur
Stingdu upp á nokkrum dögum og sendu hlekkinn í grúppuna. Könnunin bíður efst í „Mínir viðburðir“ meðan svörin berast. Ef dagurinn er þegar ákveðinn getur þú búið til viðburð beint.
Þegar dagurinn er kominn er gestalistinn líka kominn af stað. Þá er bara að ákveða hvað verður í matinn.
Og hittast loksins. Hlæja að sömu sögunum og segja nokkrar nýjar.








