Þú ert að skipuleggja fertugsafmæli fyrir sextíu manns. Það er næstum allt komið og það sem er erfiðast að ákveða eru drykkjarföngin. Tveir kassar af bjór, eða þrír? Dugar einn kassi af hvítvíni eða þarf tvo? Drekkur fólk mikið eða lítið? Hvað eru margir drykkir á mann að meðaltali?
Niðurstaðan er yfirleitt í ökkla eða eyra. Annaðhvort klárast bjórinn korter í miðnætti og einhver þarf að reyna að redda því, eða þú situr uppi með tuttugu óopnaðar flöskur og hálfan kassa af freyðivíni inni í geymslu fram á næsta sumar.
Þetta er ekki flókið að reikna, en það er erfitt að vita forsendurnar. Þess vegna er Melda komin með drykkjareiknivél sem allir geta notað.
Veislureiknivélin er komin í loftið
Veislureiknivélin áætlar hvað þú þarft að kaupa fyrir veisluna: vín, bjór, freyðivín og sterkt, ásamt gosi og sódavatni, klaka, glösum og núllurum. Þú segir vélinni hversu margir koma í veisluna, hversu lengi veislan stendur, hvert tilefnið er, hvað margir drekka áfengi og hversu hraustlega á að taka á því. Restina reiknar hún.
Hvernig á að byrja
- Opnaðu veislureiknivélina.
- Veldu tilefni og settu inn fjölda gesta og lengd veislunnar.
- Stilltu hlutfallið sem drekkur, stemninguna og drykkjablönduna þar til þetta passar við hópinn þinn.
- Sendu listann á þig sjálf í tölvupósti, eða skrifaðu hann hjá þér, og verslaðu áhyggjulaus.
Gott ráð: það er skárra að kaupa örlítið of mikið en of lítið. Oft má skila óopnuðum og óskemmdum umbúðum og fá endurgreitt, svo afgangurinn þarf ekki að fara til spillis. Passaðu þá að skemma ekki umbúðirnar, til dæmis með því að kæla flöskubjór í klaka eða láta vínkassa („beljur") standa þar sem raki kemst að þeim.
Veislureiknivélin er ókeypis og opin öllum. Þú þarft ekki einu sinni að eiga viðburð í Melda til að nota hana. En ef þú ert hvort sem er að skipuleggja veisluna heldurðu utan um gestalistann og meldingar, sætaskipan og allt hitt á sama stað þegar þú stofnar viðburð í Melda. Og ef þig vantar sal eða veisluþjónustu finnurðu þau á markaðstorginu okkar.
Heyrðu í okkur ef þú hefur ábendingar, sendu okkur línu á melda@melda.is. Göngum hægt um gleðinnar dyr og segjum skál!
