Fara í meginefni
Melda
Til baka í greinar
fermingarfermingarveislaveisluskipulagóskalistiviðburðastjórnun

Fermingarveislan á einum stað

Fermingarveislan er skörun kynslóða, fjölskyldna og vinahópa. Melda heldur utan um meldingarnar, mataróskirnar, óskalistann og sætaskipanina svo þú getir notið dagsins.

4 mín lesturVölundurRead in English
Fermingardrengur í dökkum jakkafötum með fjólubláa slaufu brosir til ömmu sinnar við fallega skreytt veisluborð með rjómatertu, bakkelsi og blómum.

Við elskum fermingar. Það er engin pressa á gestunum, gjöfin má vera seðill í umslagi, það eru geggjaðar veitingar og gestgjafinn er í sínu fyrsta alvöru hlutverki í veislu. Framtíðin er björt og vorið er komið. Svo er það maturinn, brauðréttirnir, kransakakan og fermingarbarnið sem er allt í einu orðið hálf-fullorðið.

En á bak við daginn er svolítið púsluspil: hverjir eru að koma, hvað á að baka mikið, hvar á amma að sitja, og langar fermingarbarninu í einhverjar ákveðnar gjafir?

Fermingarveislan er nefnilega ekki bara ein veisla heldur skörun kynslóða, fjölskyldna og vinahópa. Langamma og frændsystkinin, vinir úr skólanum og fjarskyldir ættingjar að norðan. Sumir koma með alla fjölskylduna, aðrir mæta einir. Einn borðar ekki kjöt, annar er með hnetuofnæmi, og tíu sögðust „kannski“ koma fyrir hálfum mánuði og hafa ekki gefið hljóð frá sér síðan.

Flest fólk heldur utan um öll samskiptin í Messenger-þráðum, á blaði á ísskápnum og jafnvel í kollinum. Það gengur alveg, en óvissan situr eftir og álagið er mikið: er ég búin að telja rétt, mundi ég að segja frá því að Alla frænka kemur ekki, gleymdi ég að bjóða einhverjum, og hvað á ég eiginlega að panta veitingar fyrir marga?

Fermingin er samvinnuverkefni fjölskyldunnar

Það besta við ferminguna er að hún er tímamót, og þess vegna á undirbúningurinn ekki að lenda allur á einni manneskju. Fermingarbarnið á helst að taka þátt og gera daginn að sínum: hverjum á að bjóða og hvað á að vera í matinn?

Partur af því að fullorðnast er að taka þátt í þessum ákvörðunum, hafa skoðanir og sinna verkefninu í undirbúningnum.

Þess vegna er Melda sniðug. Því þú getur gert fermingarbarnið að meðstjórnanda svo það fái að halda utan um gestalistann með þér, fylgjast með meldingunum tikka inn, svara skilaboðum og finna til þess að vera hluti af heild og bera ábyrgð.

Melda aðstoðar og veitir heildarsýn

  • Gestafjöldi sem stenst. Þú sérð meldingar í rauntíma í gestalistanum og veist nákvæmlega hverjir eru að koma, í stað þess að telja óljós svör í hópspjalli. Allar breytingar á mætingu færast beint inn og gestir tilkynna forföll sjálfir.
  • Fullorðnir og börn talin sér. Gestir geta meldað marga í einu, og þú færð skýra skiptingu á milli fullorðinna og barna þegar þú pantar veitingar.
  • Mataróskir og ofnæmi skráð af gestunum sjálfum. Fólk skráir ofnæmi og óþol um leið og það meldar sig, svo ekkert kemur á óvart á veisludaginn.
  • Óskalisti sem hittir í mark. Fermingarbarnið setur upp óskalista með linkum á það sem það langar í, gestirnir sjá hvar má kaupa gjöfina og geta tekið hana frá svo það komi ekki tvær eins.
  • Þrjár leiðir til að bjóða. Settu QR-kóða á prentaða boðskortið, sendu link í Messenger eða sendu boð með SMS. Þú getur líka sett inn heilan netfangalista og sent öll boðin í einu.
  • Skipaðu í sæti. Með sætaskipaninni raðarðu til borðs, heldur ömmu fjarri háværasta unglingaborðinu og setur frændsystkinin saman, allt með því að draga nöfn á milli borða.
  • Veistu hvað á að kaupa mikið. Veislureiknivélin gefur þér tilfinningu fyrir því hvað þarf mikið af veitingum og drykkjum miðað við fjöldann, svo þú kaupir hvorki of lítið né situr uppi með tuttugu lítra af gosi.
  • Öll samskipti á einum stað. Sendu öllum gestum póst í einu, spjallaðu beint við þá sem hafa spurningar, og deildu myndum af fermingarbarninu án þess að nota samfélagsmiðla.
  • Áminningar sem þú þarft ekki að muna eftir. Þau sem sögðu „kannski“ fá sjálfkrafa áminningu um að gefa alvöru svar áður en fresturinn rennur út.

Byrjaðu að skipuleggja strax

Þú getur skoðað hvað Melda gerir fyrir fermingar og hvernig öll viðburðastjórnunin heldur utan um stórt og smátt á sama stað. Og þegar þú ert til í að byrja, stofnaðu ferminguna í Melda. Það tekur tvær mínútur, og þá er allt púsluspilið komið á einn stað.

Melda bloggið

Ráð, leiðbeiningar og nýjungar fyrir viðburði

Tilbúin í að byrja?

Búðu til viðburð í Melda á augnabliki.

Búa til viðburðRead in English