Fara í meginefni
Melda
Til baka í greinar
sérsniðnar spurningar
skilyrtar spurningar
viðburðastjórnun
skipulag

Ítarlegar spurningar til gesta

Spurðu gesti um flug, mataræði og allt sem skiptir máli við meldingu. Veldu úr sjö tegundum svara og láttu skilyrtar spurningar birtast eftir svörum hvers gests.

3 mín lesturVölundur & LogiRead in English
Skipulag viðburðar með sérsniðnum spurningum við meldingu

Þú ert að undirbúa stóra árshátíð, lokar augunum og sérð þetta fyrir þér. Það þarf að bóka flug fyrir starfsfólkið á Egilsstöðum og Akureyri, er það ekki? En hvað ef einhver þeirra er hvort sem er staddur í Reykjavík þessa helgi? Á þá samt að bóka flug fyrir hann? Og bíddu, hann þarf líka að komast heim aftur. Ætli hann vilji það? Hvað með makann? Þetta er endalaus flækja.

Þess vegna er „kem" eða „kem ekki" ekki nægilega gott svar. Ætlarðu að bjóða upp á kjöt, fisk og grænmetisrétt? Þá þarftu að vita hver vill hvað. Þetta eru grundvallarupplýsingar í skilvirku skipulagi og þær koma aldrei fram nema þú spyrjir.

Hingað til hefur fólk safnað þessum upplýsingum eftir á: sent Excel-skjöl fram og til baka, hringt símtöl og elt svör uppi í tölvupósti. Í Melda er þetta hluti af ferlinu sjálfu. Þú stillir upp því sem þú þarft að vita í stillingum viðburðarins og gestirnir svara um leið og þeir melda sig.

Gerðu spurningar skilyrtar

Þú getur sett upp keðju spurninga þar sem eitt svar opnar á næstu. Svari gestur „Já" við „Þarftu flug?" birtast sjálfkrafa reitir fyrir komudag og flugnúmer. Svari hann „Nei" sér hann aldrei spurningar sem tengjast fluginu. Prófaðu þig áfram í dæminu hér að neðan.

Prófaðu, svaraðu „Þarftu flug?" og sjáðu hvað gerist.

Prófaðu

Sérsniðnar spurningar

Svaraðu spurningum og sjáðu skilyrtar spurningar birtast sjálfkrafa.

Viðbótarspurningar

Langar þig að setja upp þínar eigin spurningar? Búðu til viðburð á 2 mínútum →

Hvernig virkar þetta

  • Sjö spurningategundir — stuttur texti, langur texti, tölur, já/nei, eitt val úr lista, fjölval og gátreitur. Þú velur þá tegund sem hentar spurningunni.
  • Skilyrtar spurningar — ef gestur svarar X birtist spurning Y. Þetta virkar í mörgum þrepum, svo þú getur búið til spurningakeðjur sem aðlagast svörum hvers gests sjálfkrafa.
  • Einu sinni eða fyrir hvern gest — ákveddu hvort spurningin á við skráninguna í heild eða hvern einstakling í hópnum. „Þarftu flug?" á við einu sinni, en „Bolastærð" á við hvern gest.
  • Svör í viðburðarstjórnuninni — öll svör birtast beint í stjórnborðinu. Þú getur síað og leitað og sótt Excel-skjal ef þú þarft að deila gögnunum með veitingaþjónustu, starfsmannastjóra eða bókhaldinu.

Hvernig á að byrja

  1. Stofnaðu viðburð í Melda eða opnaðu viðburð sem þú ert nú þegar með.
  2. Opnaðu sérsniðnar spurningar á viðburðarsíðunni og smelltu á „Bæta við spurningu".
  3. Veldu tegund og skrifaðu spurninguna. Ef þú vilt búa til skilyrta spurningu velurðu foreldri og hvaða svar á að opna á hana.
  4. Birtu meldingarsíðuna og gestirnir sjá spurningarnar um leið og þeir melda sig.

Og þá er bara að prófa: stofnaðu viðburð í Melda og settu upp fyrstu spurningarnar þínar á nokkrum mínútum.

Ef þú ert með spurningar máttu endilega heyra í okkur. Sendu okkur línu á melda@melda.is.

Tilbúin í að byrja?

Búðu til viðburð í Melda á augnabliki.

Búa til viðburðRead in English