Fara í meginefni
Melda
Til baka í greinar
nýttsmsboðskortgestalistiviðburðastjórnun

SMS tilkynningar í Meldu

Sendu gestum SMS-boð úr Meldu og fáðu svörin á gestalistann. Fylgstu með afhendingu, minntu á ósvarað boð og haltu samskiptunum saman fyrir viðburðinn.

4 mín lesturVölundurRead in English
Teikning af rétt séðri ofan frá. Í miðjunni stendur maður með staf og dregur SMS skilaboð í dilka, einn dilkur fullur af fjólubláum skilaboðum og annar með fáein ósvöruð

Í aðdraganda viðburðar þurfa upplýsingar að berast í báðar áttir. Gestirnir þurfa að vita hvar og hvenær þeir eiga að mæta, og þú þarft að vita hverjir koma. Svörin hjálpa þér að panta matinn, raða borðunum og ganga frá því sem gerir daginn frábæran.

Við fylgjumst hins vegar ekki öll með sömu skilaboðum. Sumir lesa tölvupóst reglulega, aðrir sinna honum sjaldnar og margir eru á ferðinni eða í vinnu þar sem pósthólfið er langt undan. Þá getur SMS verið þægileg leið til að koma boðinu til þeirra.

Það skiptir máli að geta náð til fólks eftir fleiri leiðum og haldið svörunum saman á einum stað.

Þegar boðið bíður eftir svari

Hugsum okkur að þú sért að skipuleggja fermingarveislu. Boðin eru farin og veitingafólkið þarf bráðum að fá lokafjöldann. Nokkrir eiga enn eftir að melda sig.

Ósvarað boð getur átt sér margar skýringar. Gesturinn gæti hafa misst af tölvupóstinum, gleymt að svara eða verið að athuga hvort fjölskyldan komist. Þú þarft að fylgja eftir, en vilt helst sleppa því að dreifa samtalinu á símtöl, einkaskilaboð og nokkra messenger hópa sem þú þarft svo að bera saman.

Boð í símann, svar á gestalistann

Þú sendir SMS-boðin beint úr gestalistanum. Hver gestur fær persónulegan hlekk á skráningarsíðuna og getur meldað sig þar. Svarið fer inn á sama lista og önnur svör, svo utanumhaldið helst á einum stað þótt boðin berist eftir ólíkum leiðum.

Áður en þú sendir velur þú viðtakendur og skoðar skilaboðin. Þú getur valið orðalag og hvort nafn gestgjafans fylgi með, og séð áætlaðan kostnað fyrir SMS sendinguna í forskoðuninni.

Eftir sendingu getur þú fylgst með afhendingarstöðu, séð hvort persónulegi hlekkurinn hafi verið opnaður og athugað hverjir eiga enn eftir að melda sig. Þannig hefur þú betri forsendur til að ákveða hverjum þarf að fylgja eftir.

Prófaðu að breyta orðalagi og nafni gestgjafans. Teljarinn sýnir hvernig textinn hefur áhrif á eininganotkun.

Prófaðu

SMS boð

Breyttu orðalagi, nafni sendanda og einföldum texta. Sjáðu kostnaðinn uppfærast.

Skilaboðin

Melda

Núna

Ferming Emmu: Smelltu til að melda þig. Ásta Jónsdóttir og Birkir Ásgeirsson melda.is/s/xxxxxxxx

96/134 stafir · 2 einingar á hvern gest

Hlekkur +19Nafn sendanda +38Heiti viðburðar +12

Sérstafir (ð, þ, Á, ó) lækka mörkin niður í 70 stafi á hvert SMS.

Orðalag

Nafnið birtist neðst í skilaboðunum. Skildu reitinn eftir auðan til að sleppa því. Nafnið kemur úr prófílnum þínum.

Aðeins fornafn„Anna Jónsdóttir og Jón Ásgeirsson“ verður „Anna og Jón“
Einfaldur texti (ódýrara)Íslenskir sérstafir eins og á, ð og þ verða a, d og th. Skilaboðin komast þá yfirleitt í eina einingu í stað tveggja.

Búðu til viðburð til að senda boð og safna svörum frá þínum gestum.

Eftirfylgni sem fylgir viðburðinum

SMS nýtist líka eftir að fyrstu boðin eru farin. Í Meldu getur þú:

  • Minnt á ósvarað boð. Þegar að minnsta kosti tveir dagar eru liðnir frá SMS-boði getur þú sent eina meldingaráminningu til gests sem hefur ekki skráð sig.
  • Sent staðfestingu á meldingu. Gesturinn fær SMS með hlekk á sína síðu þegar hann skráir sig, ef kveikt er á slíkum staðfestingum.
  • Vakið athygli á nýjum pósti. Þegar þú birtir uppfærslu á viðburðasíðunni getur SMS vísað gestunum á hana.
  • Minnt á viðburðinn sjálfan. Þú getur kveikt á sjálfvirkri áminningu sem er send sólarhring fyrir viðburðinn til skráðra gesta sem ætla að mæta.

Þú velur hvaða sjálfvirku tilkynningar eru virkar. Þær fara til gesta með skráð símanúmer sem hafa valið að fá SMS, og einingar þurfa að vera til staðar fyrir sendingunni. Þú velur hvenær boðin sjálf fara út.

Þú sérð hvað skilaboðin kosta

SMS-einingar eru keyptar fyrir viðburðinn. Skilaboðin geta kostað fleiri en eina einingu eftir lengd og stöfum. Til dæmis nota boð á fjörutíu gesti áttatíu einingar ef hvert boð er tvær einingar.

Notaðu forskoðunina til að meta textann og gerðu líka ráð fyrir staðfestingum, áminningum og þeim tilkynningum sem þú ætlar að senda síðar. Stillingin Einfaldur texti getur lækkað eininganotkun með því að breyta til dæmis á í a og þ í th. Þú getur séð áhrifin á textann í forskoðuninni.

Frá boði að skýrari gestafjölda

Þú byrjar á að opna SMS tilkynningar á yfirliti viðburðarins, kveikja á SMS og velja hvaða tilkynningar eiga að vera virkar. Bættu við símanúmerum, keyptu einingar og farðu yfir viðtakendur og skilaboð áður en þú sendir boðin.

Í fermingarveislunni getur þú þannig náð til ættingjans sem sinnir tölvupósti sjaldan, fengið svarið inn á gestalistann og haldið áfram með undirbúninginn. Sama leið nýtist á starfsmannaviðburði þegar þú þarft að ná til fólks sem vinnur ólíkar vaktir eða er sjaldan við tölvu.

Boðið fer í símann, svarið á gestalistann. Þú eyðir minni tíma í að safna saman svörum og færð betri yfirsýn yfir fólkið sem þú ert að bjóða.

Melda bloggið

Ráð, leiðbeiningar og nýjungar fyrir viðburði

Tilbúin í að byrja?

Búðu til viðburð í Melda á augnabliki.

Búa til viðburðRead in English