Fara í meginefni
Melda
Til baka í greinar
veislustjóribrúðkaupdagskrásamskipti við gestiveislur

Veislustjórar með ofuraðgang

Gefðu veislustjóranum þínum fullan aðgang að skipulaginu, lokað spjall við gestina og lokaða útgáfu af dagskrá veislunnar svo óvæntu hlutirnir haldist leyndó.

4 mín lesturVölundurRead in English
Veislustjóri með hljóðnema stýrir kvöldinu á meðan brúðhjónin fylgjast með

Verðandi brúðhjón leggja allt í sölurnar við að gera daginn ógleymanlegan. Gestirnir geta gert daginn enn ógleymanlegri með ræðum og skemmtiatriðum. Veislustjórarnir sinna gríðarlega mikilvægu hlutverki í því að skipuleggja aðkomu gestanna án þess að brúðhjónin viti hvað er í vændum. Óvæntar uppákomur eru það sem gera kvöldið enn ógleymanlegra.

En þetta hlutverk er oft erfitt og flókið. Hvernig eiga gestirnir að hafa samband við veislustjórana, og hvernig geta þeir haldið utan um skipulag kvöldsins án þess að brúðhjónin sjái planið?

Svarið er Melda! Við vorum að setja í loftið virkni sem einangrar samskipti og skipulag veislustjóra frá brúðhjónunum. Nú þurfa brúðhjónin ekki lengur að segja gestunum að hringja í veislustjórana til að panta ræðutíma eða láta vita af skemmtiatriðum. Gestirnir og veislustjórar spjalla í Meldu og brúðhjónin fá ekkert að vita.

Veislustjórar eru í bakgrunni, en hafa öll völd

Brúðhjónin bjóða veislustjórunum að vera stjórnendur á viðburðinum. Þeir fá sama aðgang og brúðhjónin til að skipuleggja, geta stjórnað gestalista og sætaskipan, en þeir birtast aldrei sem gestgjafar fyrir gestunum. Brúðhjónin standa ein í sviðsljósinu.

Það sem meira er: veislustjórinn fær eigið spjall við gestina, aðskilið frá spjalli gestgjafanna. Þar geta gestir undirbúið ræður, atriði og óvæntar uppákomur án þess að nokkuð leki til þeirra sem eiga að verða hissa. Þetta er hjartað í hlutverkinu, og allt annað byggist á því.

Veislustjórar fá

  • Fullt vald yfir viðburðinum veislustjórinn getur breytt viðburðinum og haldið utan um gesti eins og hver annar í teyminu, en nafnið hans birtist hvergi þar sem gestir sjá hver býður til veislu.
  • Eigið spjall við gesti gestir senda veislustjóranum skilaboð beint, í þræði sem gestgjafarnir sjá aldrei. Þarna fara óvæntu atriðin fram í undirbúningi, svo leyndó helst leyndó alla leið að veislunni.
  • Dagskrá veislustjóra innri tímalína veislunnar: hvað gerist, hver sér um það og hvenær. Hún er falin fyrir gestgjöfum, og veislustjórinn velur sjálfur hvaða atriði hann deilir með þeim, eitt í einu með „Sýna gestgjöfum“.
  • Hlekk á dagskrána sem opnast í símanum dagskrána má opna gegnum hlekk án innskráningar, þægilega í símanum á meðan á veislunni stendur. Enginn þarf að fitla við að skrá sig inn í Meldu á meðan álagið er mikið.
  • Kort á skráningarsíðunni gestir sjá veislustjórana á sinni eigin skráningarsíðu og geta sent þeim skilaboð með einum smelli, hvort sem það er hugmynd að atriði eða spurning sem þarf ekki að senda brúðhjónunum.
  • Þeir halda póstunum lifandi veislustjórar mega skrifa pósta eins og gestgjafar og eru oftast duglegastir við það. Áminningar, upphitun og stemning fyrir kvöldið, allt merkt „Veislustjóri“.

Hvernig gerir maður besta vin sinn að veislustjóra?

  1. Opnaðu teymið á viðburðinum þínum og ýttu á „Bjóða í teymið“.
  2. Veldu hlutverkið Veislustjóri og settu inn netfangið. Boðið sem berst útskýrir hlutverkið: eigið spjall við gesti og verkfæri fyrir dagskrá veislunnar.
  3. Leyfðu veislustjóranum að taka við. Um leið og hann samþykkir fær hann sitt eigið spjall við gesti og aðgang að dagskrá veislustjóra.

Hvernig getur þetta breytt veislunni þinni?

Ímyndaðu þér 200 gesta brúðkaup þar sem systir brúðurinnar er veislustjóri. Vikurnar á undan spjallar hún við frændsystkinin um leyniatriði, fær nokkra gesti til að taka upp kveðjur og raðar öllu saman í dagskrá veislustjóra: ræða svaramanns klukkan níu, leynikór klukkan hálftíu, myndbandið rétt fyrir eftirréttinn. Brúðhjónin sjá ekkert af þessu. Þau vita bara að veislustjórinn er að sjá um þetta og er með alla þræði í hendi sér. Þegar að veislunni kemur opnar systirin dagskrána í símanum og fylgir röðinni lið fyrir lið, á meðan brúðhjónin fá að vera jafn hissa og gestirnir.

Sama gildir um hvaða veislu sem er. Stórafmæli þar sem börnin skipuleggja atriði fyrir foreldrið sem á afmæli. Árshátíð þar sem skemmtinefndin vill að forstjórinn viti ekki hvað er í vændum. Alls staðar þar sem einhver á að koma á óvart þarf einhver annar að halda þræðinum, og nú hefur sá einhver rétta verkfærið.

Veislustjórar sitja við hlið alls annars sem þú heldur utan um á sama viðburði, frá meðstjórnendum og hlutverkum í teyminu að öllu skipulaginu kringum brúðkaupið. Þegar þú vilt að einhver annar haldi utan um óvæntu atriðin, stofnaðu viðburð í Meldu og bjóddu veislustjóra í teymið. Það tekur tvær mínútur.

Melda bloggið

Ráð, leiðbeiningar og nýjungar fyrir viðburði

Tilbúin í að byrja?

Búðu til viðburð í Melda á augnabliki.

Búa til viðburðRead in English