Þið eruð að skipuleggja brúðkaupið ykkar. Annað ykkar er með alla þriðju vaktina á herðunum og alla þræðina í höndunum: gestalistann, boðskortin, tölvupóstinn frá veislusalnum, skilaboðin frá veislustjóranum, Excel-skjalið með borðunum.
Makinn situr við hliðina og getur lítið gert nema spyrja „hvernig gengur?" og „get ég hjálpað við eitthvað?". Þetta þarf ekki að vera svona. Það er miklu skemmtilegra að gera þetta allt saman.
Maður þarf svosem ekki að vera að gifta sig til að halda veislu með öðrum. Skemmtinefndin á skrifstofunni, nefndin í nemendafélaginu eða á ættarmótinu.
Dreifðu ábyrgð og bættu innsýn með Meldu
Í Meldu geta margir verið eigendur að sama viðburði. Hver stjórnandi skráir sig inn með sínum eigin aðgangi og hefur fulla stjórn á öllum málum. Þið sjáið sömu meldingarnar, sama gestalistann, spurningarnar, samskiptin, póstana og sætaskipanina. Í rauntíma.
Þú býður meðstjórnanda með því að senda boð á netfangið hans. Ef netfangið er þegar með Melda-aðgang tengist allt sjálfkrafa þegar hann samþykkir. Í póstinum stendur skýrt hvað felst í þessu: „Sem meðstjórnandi geturðu breytt upplýsingum um viðburðinn, skoðað skráningar og hjálpað til við skipulagningu." Þú úthlutar verkefnum af verkefnalistanum á meðstjórnendur og setur lokadagsetningu, svo allir sjá hvað er á hvers könnu og hvenær það á að klárast.
Mismunandi hlutverk minnka áhættu
Það er ekki sama hver er með hvaða heimildir. Þú velur hvað hver fær að gera þegar þú býður fólki á viðburðinn þinn í viðburðastjórnuninni:
- Eigandi — full stjórn. Getur breytt öllu, stýrt hverjir aðrir eru eigendur og hlutverkum þeirra, og eytt viðburðinum. Þetta eruð þið hjónaleysin.
- Stjórnandi — breytir viðburðinum, heldur utan um gestina og sendir skilaboð. Fullkomið fyrir veislustjórann eða skipuleggjandann.
- Meðstjórnandi — breytir grunnupplýsingum og heldur utan um gestina. Góður fyrir þann sem á að hjálpa til án þess að halda á öllu.
- Skoðandi — sér viðburðinn og gestalistann, en breytir engu. Akkúrat fyrir foreldrana sem vilja fylgjast með, eða birgi sem þarf bara að sjá hausafjöldann en á ekkert að geta breytt.
Þetta síðasta skiptir meira máli en það hljómar. Það er gott að geta hleypt einhverjum að án þess að óttast að hann breyti einhverju óvart. Skoðandi sér allt sem hann þarf og ekkert meira.
Fyrir fyrirtæki: bjóddu teyminu þínu að stjórna
Hvort sem þú heldur utan um veislusal í bókunarkerfinu, rekur veitingaþjónustu eða aðra þjónustu á Melda-markaðstorginu, þá átt þú ekki að þurfa að gera allt með einum notanda.
Fyrirtækið þitt er skráð í Meldu og þú býður samstarfsfólki að vera notendur sem tengjast fyrirtækinu þínu með því að „Bjóða meðlim". Boðið sendist á netfang, alveg eins og með viðburði. Þar eru tvö hlutverk:
- Stjórnandi — heldur utan um liðið sjálft: býður fólki inn, breytir hlutverkum, fjarlægir fólk, stýrir stillingum fyrirtækisins og getur fiktað í öllum tökkunum í Meldu.
- Meðlimur — sér um reksturinn: breytir þjónustuauglýsingum, heldur utan um bókanir, samskipti, innheimtu og daglegt amstur.
Þannig stýrir liðið þjónustunum sínum saman: veislusalnum, veitingunum, hverju sem er. Það situr enginn einn uppi með öll völd og ábyrgð og skapar vesen með því að fara í frí.
Notandi getur tilheyrt mörgum fyrirtækjum og þú skiptir á milli þeirra með einum smelli. Þú rekur kannski tvo veislusali, eða ert bæði með veislusal og veitingaþjónustu. Eitt höfuð, margir hattar, einn innskráður aðgangur. Starfsmenn sem eiga bara að vinna í salnum fá aðgang að honum, en bókarinn sem sér um bókhaldið fyrir báðar einingar getur séð bæði salinn og veitingaþjónustuna.
Það er gaman að undirbúa veislu þegar allt gengur vel
Melda gerir veisluskipulag skemmtilegt. Bjóddu makanum, samstarfsfólkinu, viðburðaskipuleggjanda eða hverjum sem er að vera með. Stofnaðu viðburð í Melda og deildu álaginu. Það tekur tvær mínútur.
Ef þú rekur fyrirtæki og vilt fá liðið þitt inn, skoðaðu markaðstorgið eða heyrðu í okkur á melda@melda.is.








