Það er næstum allt tilbúið, búið að ákveða veitingar, skemmtiatriði og veislan er bókstaflega á morgun. En vá, það á eftir að raða hundrað manns til borðs! En hvað er það sem gerir góða og hefðbundna veislu þar sem setið er til borðs skemmtilega? Það er góður og viðeigandi félagsskapur fyrst og fremst. Allir gestirnir þínir eiga það skilið að sitja á borði sem hentar þeim. Þú þarft að hugsa um aldursbil, fyrri tengsl, áhugamál, lífsreynslu, getu til að mynda tengsl og segja brandara. Og svo er það hin hliðin, er einhver óþægileg saga á milli gesta, er sumt fólk búið að fá alveg nóg af einhverjum öðrum í fjölskyldunni eða vinahópnum?
Íslenskir viðburðir eru sérstakir að því leyti að allir þekkja alla. Í litlu brúðkaupi í Árbænum eða fermingarveislu í Hafnarfirði er sætaskipan ekki bara félagslegt mál — hún getur verið pólitík. Þú þarft að muna eftir því hver er ólétt, hverjir tala ekki saman, og hvaða gestir eru settir á barnaborðið svo foreldrarnir njóti sín, og krakkarnir nái að tengjast, og eiga góða stund.
Þangað til í dag hefur fólk gert sætaskipan í Excel, á pappír, eða með límmiðum á eldhúsborðinu. Við hjá Melda erum búin að gera þægilega virkni til að aðstoða við þetta ferli.
Sætaskipan í Meldu
Þú dregur gesti úr gestalistanum yfir á borð og raðar þeim eins og þú vilt að þeir sitji. Þú sérð alltaf hverjum hefur ekki verið skipað í sæti. Mökum er sjálfkrafa skipað á sama borð, með börnum ef svo ber undir. Hins vegar er lítið mál að færa hvern gest á sérstakt borð ef hugmyndin er að hafa sérstakt borð fyrir krakka og annað fyrir fullorðna. Það er líka hægt að skipa mökum á sitthvort borðið.
Prófaðu með því að draga gest á borð.
Sætaskipan
Dragðu gesti til borðs, opnaðu borðflipa og endurstilltu að vild.
4 manns
2 manns
2 manns
2 manns
2 manns
2 manns
Aðalborð
6/8Vinaborð
3/6Fjölskylduborð
0/10Háborð
0/4Kokteilborð
0/4Langar þig að prófa með eigin gestalista? Búðu til viðburð á 2 mínútum →
Gestirnir geta valið sér borð sjálfir
Þú getur líka sleppt því að skipa á borð og leyft gestunum að velja sér borð sjálfir. Til að gera það kveikirðu á „sjálfsvali" í stillingum viðburðarins, stillir tímafrest og gestir velja sér borð þegar þeir hafa meldað sig. Þú sérð strax hverjir eru komnir með borð og hverjir eru eftir.
Þegar þú kveikir á sjálfsvali fá gestirnir snyrtilegt borðaval beint á gestasíðunni sinni. Þeir sjá hvaða borð eru laus, og velja sér sæti.
Veldu þér borð fyrir þig og makann.
Borðaval gesta
Skoðaðu borð, sjáðu hverjir sitja hvar, og veldu þér sæti.
Viltu leyfa gestum að velja sér borð? Búðu til viðburð →
Fleiri smáatriði
Sætaskipanin er hönnuð með íslenska viðburði í huga, allt frá litlum fermingarveislum upp í fjölmennar árshátíðir.
- Dragðu úr hliðarlistanum. Allir gestir sem hafa meldað sig á viðburðinn birtast sjálfkrafa á listanum. Dragðu staka gesti á eitt borð eða heila hópa á sama borð.
- Mataróskir og ofnæmi á borðinu. Litlir litaðir punktar við nafn hvers gests sýna sérþarfir eða ofnæmi.
- Fimm tegundir borða. Melda gerir ráð fyrir hringborðum, löngum borðum og kokteilborðum fyrir alla viðburði, og fyrir brúðkaupin er hægt að velja heiðursborð fyrir svaramenn og nærfjölskyldu og að sjálfsögðu sérstakt háborð fyrir brúðhjónin sjálf.
- Taktu frá borð sem eiga að vera utan sjálfsvals. Sum borð eru frátekin: háborðið, borð stjórnenda, borð fyrir nánustu fjölskyldu. Læst borð sjást ekki í sjálfsvali gesta. Þú skipar á þessi borð handvirkt.
- Stofnaðu mörg borð í einu. Sláðu inn fjölda, stærð og form og Melda býr þau til strax.
- Prentaðu eða sæktu. Sætakort til að setja á vegg, borðaspjöld til að setja á hvert borð, gestalisti í stafrófsröð, og Excel-export.
Meira um sætaskipan
Sætaskipan er ný inni í Melda en hún er líka grunneining í því sem við erum að smíða: viðburðastjórnun sem hugsar um hlutina á íslensku, fyrir íslensk brúðkaup, fermingar og árshátíðir. Lestu meira hér.
En nóg af lestri. Stofnaðu viðburð strax til að læra almennilega á þetta.








