Fara í meginefni
Melda
Til baka í greinar
veislusalirfundarherbergifundarsalirsalirbókunarvélbókunarhnappurheimasíða

Skiptu út fyrirspurnarforminu fyrir alvöru bókunarvél

Settu bókunarvél fyrir veislusali og fundarherbergi beint á vefinn með einni línu af kóða — gestir bóka án þess að fara af síðunni.

4 mín lesturVölundurRead in English
Salareigandi vinnur við fartölvu á móttökuborði; dúkaður salur með smáljósum og mjúkri purpurabirtu í bakgrunni.

Það er fimmtudagur og hólfið þitt er fullt af sömu skilaboðunum: „Sæl, eruð þið með laust 14. mars?" — „Hvað kostar salurinn fyrir 60 manns?" — „Er eitthvað laust eina helgi í apríl?" Þú svarar hverjum og einum, sendir verð og myndir og ... bíður. Helmingurinn svarar aldrei aftur. Og á meðan stóð föstudagskvöldið í síðustu viku autt af því að gesturinn sem ætlaði að bóka komst aldrei í gegnum allt þetta kóf og fann sér annan stað.

Vandinn er ekki að fólk vilji ekki bóka hjá þér. Vandinn er að það þarf að fara af heimasíðunni þinni, finna netfang, skrifa tölvupóst eða fylla út óskýrt form og bíða svars, og viðskiptavinir heltast úr lestinni við hverja ítrun.

Það sem þú vilt er að gesturinn sem er kominn á síðuna þína geti séð hvað er laust og sent beiðni á staðnum, áður en hann nær að skipta um skoðun. Ekki eyða pening í markaðssetningu sem endar með því að gesturinn hættir við að senda þér skilaboð.

Bókunarvél fyrir sali á heimasíðu, beint inn á þína eigin síðu

Melda býr yfir bókunarvél fyrir veislusali sem þú límir beint inn á þína eigin heimasíðu. Eina lína af kóða. Einfalt og árangursríkt. Hún virkar fyrir allar tegundir rýma sem þú leigir út. Gesturinn velur dagsetningu, sér hvað er laust og sendir bókunarbeiðni án þess að yfirgefa síðuna þína og án þess að þurfa að stofna aðgang að Meldu.

Þú færð þrjár útgáfur og velur þá sem passar hönnun síðunnar þinnar:

  • Innfellt dagatal sem fellur inn í síðuna. Gesturinn sér lausa daga og bókar í samhengi við efnið sem þú ert með á vefnum þínum.
  • „Bóka núna" hnappur sem opnar bókunarvélina í glugga ofan á síðunni. Meiri fókus á bókunarferlið sjálft.
  • Popup frá hvaða elementi sem er. Þú getur tengt bókunina við hnapp, mynd eða hlekk sem er nú þegar á síðunni þinni.

Lítið, ~3KB JavaScript sækir Melda-viðmótið sem ber þína liti og þitt nafn. Gestinum líður eins og hann sé enn á þínu vefsvæði, því hann er það. Bókunarvélin er einfaldlega felld inn í vefinn þinn, en les upp úr gagnagrunnum Meldu og notar alla viðskiptalógíkina sem þú ert búinn að stilla í sveigjanlega bókunarkerfinu.

Sama bókunarferli, í þínum búningi

Ferlið sem gesturinn fer í gegnum er nákvæmlega það sama og á Meldu sjálfri, nema bara með þínu vörumerki. Hann sér hvaða kvöld eru laus á sölunum þínum, velur eitt, fyllir út og sendir inn skýra og vel undirbúna bókunarbeiðni.

Eitt þarf að vera á hreinu: bókunarvélin tekur við beiðnum, ekki staðfestum bókunum. Gesturinn greiðir ekki strax í gegnum gluggann. Beiðnin lendir hjá þér og þú samþykkir, hafnar eða gerir gagntilboð. Alveg eins og þú gerir nú þegar, nema að samtalið er skipulagt, viðskiptavinurinn veit hvaða kvöld eru laus hjá þér og þú ert við stjórnvölinn.

Bókunarvélin sér um að hjálpa gestinum á meðan hann er á síðunni og með hugann við málið.

Beiðnirnar lenda allar á sama stað

Þú þarft ekki nýtt pósthólf eða nýtt kerfi. Allar beiðnir úr bókunarvélinni detta inn í sama bókunarhólf, óháð því af hvaða miðli bókunarfyrirspurnin kemur. Þú getur flokkað bókanirnar eftir því hvaðan þær koma. Þú stjórnar þeim öllum á einum stað, hvort sem gesturinn fann þig á Markaðstorginu í Meldu eða beint á heimasíðunni þinni.

Gesturinn þarf ekki að eiga Melda-aðgang til að halda utan um bókunina. Hann fær hlekk sem leyfir honum að skoða, svara spurningum, breyta eða afbóka, og hann getur búið til aðgang að Meldu hvenær sem er til að hafa enn betri stjórn. Lykilatriðið er að hver sem er getur bókað salinn þinn — það eru engar bremsur.

Sjáðu hvaða markaðsstarf skilaði bókuninni

Hver beiðni sem kemur inn í gegnum bókunarvélina ber með sér UTM-merkingar sem segja hvaðan gesturinn kom upprunalega. Ef þú keyrir auglýsingaherferð, póstlista eða Instagram-færslu sérðu hvaða leið skilaði raunverulegri bókun á salinn þinn. Þú hættir að giska á hvað virkar og ferð að setja peningana á þá staði sem skila bókunum.

Þú heldur fullri stjórn. Og þú getur deilt ábyrgð með öllum sem vinna í bókunum. Samskiptasaga við viðskiptavini á einum stað.

Byrjaðu með salinn þinn

Hvort sem þú leigir út veislusali fyrir stórafmæli, fundarherbergi fyrir vinnuhópa eða fundarsali fyrir ráðstefnur, þá er hugmyndin sú sama: láttu gestinn bóka á þínum heimavelli. Ein lína af kóða, þínir litir, þitt vörumerki og beiðnirnar koma beint til þín.

Viltu sjá bókunarvélina á þínum eigin sölum? Skoðaðu hvernig hún vinnur fyrir veislusali í bókunarkerfinu og fyrir fundarherbergi og fundarsali, og bókaðu kynningu → þar sem við setjum bókunarvélina upp á síðunni þinni með þér.

Melda bloggið

Ráð, leiðbeiningar og nýjungar fyrir viðburði

Tilbúin í að byrja?

Búðu til viðburð í Melda á augnabliki.

Búa til viðburðRead in English