Fara í meginefni
Melda
Til baka í greinar
nýttbiðlistigestalistiviðburðastjórnun

Hámarksfjöldi og biðlistar

Stilltu hámarksfjölda á viðburðinn þinn. Þegar öll pláss eru farin lenda meldingar á biðlista. Þú hleypir gestum inn einum í einu þegar pláss losnar.

3 mín lesturVölundurRead in English
Hámarksfjöldi og biðlisti í Melda — gestir á biðlista bíða eftir að pláss losni

Það er svo geggjað þegar flottar hugmyndir um starfsmannastuð sprettur upp á vinnustaðnum. Jónas sem bjó í Finnlandi í 3 ár og Lára sem er búin að vera í Jógakennararnámi með vinnu í vetur langar svo að bjóða fólki sem hefur áhuga í Gusukvöld í Fargufunni á Ægisíðu. En það komast bara 15 með, og það eru 200 starfsmenn á vinnustaðnum. Betra að sleppa þessu bara?

En afhverju að hætta við? - þetta er geggjuð hugmynd og myndi þjappa fólki vel saman!

Það eina sem þú þarft er að nota Meldu, bjóða fólki og skrifa í boðið að það sé „fyrstur meldar, fyrstur fær fyrirkomulag" á þessari gusuferð. Þeir sem Melda sig eftir að öll plássin eru búin getur farið á biðlista ef það losnar.

Þetta opnar nýja vídd í sjálfssprotnum starfsmannaviðburðum og eflir grasrótina í starfsmannafélaginu til geggjaðra verka! Það eina sem fólk þarf að gera er að koma með tillögu að viðburði, skilgreina hámarksfjölda, og senda út boð.

Já, Melda er með hámarksfjölda og biðlistavirkni á öllum viðburðum!

Þú gerir þetta með því að kveikja á takmarka fjölda gesta á viðburðinn þinn í viðburðastillingunum, þegar þú hefur gert það skráir þú inn þann fjölda sem getur komið á viðburðinn. Þar geturðu líka kveikt á biðlistanum með því að kveikja á Biðlisti þegar fullt er

Þegar fjöldinn nær hámarkinu fara næstu meldingar sjálfkrafa á biðlista í staðinn fyrir að vera hafnað.

En hvernig virkar biðlistinn? Efstur á biðlistanum er sá gestur sem meldaði sig fyrst, sá sem meldaði sig á eftir honum er númer 2 og svo koll af kolli. Til að sanngirni sé gætt og full meðvitund um ferlið sé gætt útdeilir Melda ekki sætum á biðlistagesti sjálfkrafa heldur þarf gestgjafinn að gera það.

Hvernig færi ég af biðlistanum yfir mætingarlistann? Góð spurning. Þú opnar stjórnham viðburðarins og skrunar niður að svæðinu sem merkt er Gestalisti, þar sérðu fjölda þeirra sem eru á biðlistanum og smellir. Þá opnast biðlistinn og þú sérð nöfn - smellir á Samþykkja við það nafn sem á að færast yfir.

Gesturinn fær glaðlegan tölvupóst um að hann sé núna kominn af biðlistanum á meldingarlistann.

Gestir á biðlistanum vita hvar þeir standa. Þeir fá tölvupóst við skráningu á biðlistann og áréttingu í tölvupósti viku- og degi fyrir viðburðinn svo þeir mæti ekki vegna misskilnings. Þeir geta líka afskráð sig af biðlistanum með einum smelli ef þeir vilja ekki lengur vera í biðstöðunni.

Biðlistar eru gagnlegir í mörgum tilfellum Þegar skipuleggja á námskeið, vísindaferðir í háskóla, gefa fólki val um vinnustofur á ráðstefnum, starfsmannaferðir þar sem pláss er takmarkað. Ársfundir stofnana eru oft með takmarkað sætaframboð og svo mætti lengi telja.

En lykilatriðið er að skipuleggja skemmtilega viðburði, skemmta, þétta, gleðja, þjálfa eða mennta fólkið sitt og veita öllu því sem maður vill að vex og dafni athygli.

Stofnaðu viðburð eða opnaðu þann sem þú ert að skipuleggja →

Melda bloggið

Ráð, leiðbeiningar og nýjungar fyrir viðburði

Tilbúin í að byrja?

Búðu til viðburð í Melda á augnabliki.

Búa til viðburðRead in English