Þú stendur við dyr ráðstefnu með klemmuspjald og prentaðan gestalista. Fyrstu þrjátíu gestirnir tínast inn og kerfið virkar. Finndu nafnið, strikaðu yfir, veifaðu þeim inn. Svo koma stóru rúturnar. Áttatíu manns í röð, helmingurinn með staðfestingarpóst á símanum, og nokkrir sem þú finnur hvergi á listanum því hann var prentaður áður en síðustu meldingarnar bárust.
Hvort sem þetta er þriggja daga ráðstefna, árshátíð fyrir 500 manns eða útgáfupartý fyrir nýja plötu, þá viltu ekki að fólk stoppi í dyrunum til að bíða eftir því að komast inn.
QR miðaskönnun í Meldu flýtir ferlinu og virkar alltaf!
Miðaskönnun: frá meldingu að dyrum
Þú stofnar viðburð í Meldu og kveikir á miðaskönnun. Þú stillir PIN númer fyrir dyraverðina og þegar gestirnir koma veifa þeir e-wallet passanum á símanum sínum og er hleypt inn.
En hvernig er ferlið frá A-Ö? Fyrst sendir þú út boð á gestina með tölvupósti eða hlekk. Gestirnir melda sig á viðburðinn og um leið og einhver staðfestir mætingu býr Melda til QR miða fyrir hvern gest í meldingunni. Einn miði á mann. Gesturinn sækir wallet passann í gegnum staðfestingarpóstinn eða viðburðasíðuna.
Á viðburðinum opnar dyravörðurinn vafra í hvaða símtæki sem er, opnar skannann í Meldu og slær inn PIN. Eftir það er hver skönnun staðfest á staðnum, niðurstaðan birtist á broti úr sekúndu. Mörg tæki geta notað sama hlekkinn og PIN samtímis. Fjórir sjálfboðaliðar við fjóra innganga. Skönnun uppfærist á milli tækja og ekkert vesen.
Hvað gerist þegar eitthvað fer úrskeiðis
„Hvað ef gestur kemur ekki með síma?" Skanninn er með viðmóti til að leita í gestalistanum. Finndu nafn gestsins og skráðu inn handvirkt.
„Hvað ef netið dettur út?" Hvert tæki sem er notað til að skanna er með sitt eintak af gestalistanum og þarf ekki stöðugt net til að virka. Innritanir safnast upp á tækinu og samstillast þegar tenging næst aftur. Tæknilegar útskýringar eru í hvernig skanninn virkar án nets.
„Hvað ef við erum með 2.000 eða 6.000 gesti?" Uppflettingin er jafn hröð hvort sem gestalistinn telur 50 eða 6.000 gesti.
Langar þig að prófa á eigin viðburði? Stofnaðu viðburð á 2 mínútum →
Hvernig á að byrja
- Stofnaðu viðburð í Meldu og safnaðu meldingum, annað hvort í gegnum boðskort í Melda eða með því að flytja inn gestalista.
- Kveiktu á miðaskönnun á viðburðinum. Ef gestir hafa þegar meldað sig býður Melda þér að senda öllum miða með í einum smelli.
- Deildu skanna hlekknum með dyravörðunum. Þú afritar hlekkinn af viðburðasíðunni og sendir hann ásamt PIN númerinu, með Messenger, SMS, WhatsApp eða tölvupósti. Þeir opna hlekkinn í hvaða vafra sem er, slá inn PIN og eru tilbúnir.
- Gestir mæta með QR miðann sinn, í símanum, í tölvupósti eða vistaðan í Apple Wallet eða Google Wallet. Ein skönnun skráir þá inn.
Næstu skref
Skanninn staðfestir á staðnum og samstillist þegar tenging næst aftur. Til að skilja nákvæmlega hvernig skanninn virkar án internets og hvernig á að prófa hann, lestu hvernig skanninn virkar án nets.
Fyrir wallet-pössum, inneignum og uppsetningu, skoðaðu miðaskönnunarsíðuna. Tilbúin að prófa? Stofnaðu viðburð og kveiktu á miðaskönnun.








