Fara í meginefni
Melda
Til baka í greinar
drykkjamiðarinneignirárshátíðirskanniviðburðastjórnun

Stafrænir drykkjamiðar í Meldu

Við viljum halda geggjað partý, en við viljum líka hafa þak á kostnaðinum. Stafrænu drykkjamiðarnir í Meldu gefa þér fullkomna stjórn á vettvangi og í bókhaldinu.

5 mín lesturVölundurRead in English
Gestur sýnir QR kóða í síma við barborðið á meðan barþjónn blandar drykk

Það er geggjað að halda partý fyrir starfsfólk og maka. Við hittumst til að fagna því sem hefur gengið vel og tengjast á persónulegu nótunum. Brjóta brauð og væta kverkarnar. Vinnuveitendur sem bjóða til veislu leggja mikið á sig til að gera kvöldið ógleymanlegt með það að markmiði að þétta raðirnar og ná enn betri árangri til framtíðar.

En svo kemur að kostnaðinum. Þetta er dýrt - sem er allt í lagi, en það þarf samt að setja einhverjar bremsur. Eini stóri óvissuþátturinn um kostnað er fólgin í því hversu mikið fólk drekkur. Þarf fyrirtækið að gera ráð fyrir því að hver gestur fái sér 2 drykki á barnum? Eða verða það 5? - og er ekki eðlilegt að ætlast til að starfsmenn drekki mátulega og það verði ekki holskefla kvartana yfir ósæmilegri hegðun til starfsmannastjórans á mánudaginn?

Í mörg ár hafa vinnustaðir leyst úr þessum málum með því að búa til inneignir fyrir hvern starfsmann. Þessum inneignum er svo útdeilt í hlutbundnu formi, til dæmis sem pappírsmiðum, pókerskífum eða álíka. Gestur sem fær drykk á barnum afhendir miðann og á þá einni færri eftir.

Pappírsdrykkjamiðar virka á grillkvöld í Árbænum þar sem allir þekkja alla. Á stærri viðburði fara þeir úr böndunum. Þeir týnast í frakkavasanum, lenda hjá vinum, og stundum á ljósritunarvélinni. Barþjónninn hefur enga leið til að vita hvort miðinn er gildur og engan tíma til að rannsaka málið á önnum.

Þetta er semsagt ágætis leið - stundum. En hérna eru nokkur dæmi um gallana við hana:

  • Það fer mikil vinna í að útbúa miðana
  • Það er hægt að falsa inneignir ef maður veit hvernig þær líta út
  • Inneignirnar geta ratað út af barnum aftur ef þeirra er ekki vel gætt
  • Gestir geta byrjað að safna að sér inneignum annarra gesta (sem vilja ekki drykki)
  • Gestir geta týnt miðunum sínum
  • Fólk getur séð hvort aðrir séu búnir með miðana sína

Sérðu þetta ekki fyrir þér? Barþjónninn opnar skúffuna og þar liggur haugur af krumpluðum pappírsmiðum sem enginn getur greint sundur. Allir 300 gestirnir áttu að fá tvo fría drykki. Svo þú klipptir út 600 miða kvöldið áður, skreyttir þá jafnvel með fyrirtækjalógóinu, og afhendir hverjum gesti tvo við dyrnar. Klukkan níu hefur einhver týnt sínum, annar fékk tvo auka frá kollega sem er á bíl, og sá þriðji er búinn að ljósrita sína miða.

Þessvegna er Melda með virki þar sem gestir sem Melda sig á viðburði fyrirtækja fá QR kóða í e-wallet. Þennan QR kóða skannar barþjónninn og skráir niður pöntunina sem er afgreidd yfir barborðið.

e-Wallet lausn fyrir veitinganotkun

Þú skilgreinir hvað hver gestur fær — tvo bjóra, eitt glas af freyðivíni við komuna, fimm inneignir til að ráðstafa eins og þeim hentar — og kerfið sér um restina. Engir pappírsmiðar, engin gatari eða krumpaðir miðar, engin gisk á barnum.

Það eru tvær leiðir.

  1. Innifalið magn er fast: hver gestur fær nákvæmlega tvær inneignir og þegar þeir klárast þá þarf gesturinn að taka upp veskið og borga sjálfur.
  2. Flex inneignir eru sameiginlegur potti: hver gestur fær til dæmis fimm inneignir og bjór kostar eina á meðan kokteil kostar tvær. Gestirnir ákveða sjálfir hvernig þeir nýta inneignirnar sínar.

Barþjónninn þarf ekkert sérstakt forrit eða bunka af pappír og sér allt á einum skjá: eftirstandandi magn, flex stöðu. Einn smellur til að innleysa, einn til að afturkalla ef rangt var skannað og ef gesturinn er ekki með símann sinn, þá getur barþjónninn fundið hann í skanna viðmótinu og merkt við notkunina.

Prófaðu — bættu við drykkjum, skiptu á milli flex og fastra. Ekkert vistast.

Prófaðu

Inneignahlutir

Bættu við drykkjamiðum, stilltu magn og veldu milli flex inneigna og fastra hluta.

Hvað er í boði?

Skilgreindu það sem gestir geta fengið með inneignum sínum, t.d. gos, snakk, bjór, kokteil, o.s.frv.

5 inneignir á gest
🥂

Fordrykkur

InnifaliðMagn á gest: 120+
🍺

Bjór

FlexKostnaður (inneignir): 120+
🍷

Vín

FlexKostnaður (inneignir): 120+
🍸

Kokteil

FlexKostnaður (inneignir): 220+
🍻

Núllari

FlexKostnaður (inneignir): 1
🍹

Óáfengur kokteill

FlexKostnaður (inneignir): 1
🥤

Gosdrykkir

FlexKostnaður (inneignir): 1

Langar þig að prófa á eigin viðburði? Búðu til viðburð á 2 mínútum →

Hvernig virkar þetta

Inneignakerfið er byggt á sama grunni og QR miðaskönnun við dyrnar og sömu netlausu hönnun sem heldur öllu gangandi þegar WiFi dettur.

  • Tvær tegundir inneigna. Fastir hlutir á gest: „2 bjórar" þýðir nákvæmlega tveir bjórar. Flex inneignir gefa hverjum gest inneignir sem hann eyðir í drykki á mismunandi verði: gosdrykkur kostar eina inneign, kokteil kostar tvær. Gestur getur notað inneignir eins og hann vill.
  • Aldursstaðfesting innbyggð. Merktu hluti með aldurstakmarki og stilltu lágmarksaldur. Kerfið athugar fæðingardag gestsins út frá kennitölunni og lokar á innlausnina ef gesturinn er undir aldri. Engin vandræðaleg samtöl og vinnustaðurinn hefur gert sitt til að koma í veg fyrir drykkju sem er ekki lögleg.
  • Virkar án nets. Ef nettengingin er ekki góð heldur skanninn samt áfram. Innlausnir eru geymdar staðbundið og samstilltar í lotu þegar tenging kemst á aftur: sama biðröð og við smíðuðum fyrir netlausri innritun. Barinn stöðvast aldrei.

Ef þú vilt lesa hvernig skanninn virkar við dyrnar, skoðaðu QR miðaskönnun. Forvitinn um hvað gerist þegar WiFið klikkar? Við skrifuðum heila grein um netlausan skanna. Fyrir heildarmyndina af inneignakerfinu skoðaðu landingarsíðu miðaskönnunar.

Melda bloggið

Ráð, leiðbeiningar og nýjungar fyrir viðburði

Tilbúin í að byrja?

Búðu til viðburð í Melda á augnabliki.

Búa til viðburðRead in English