Fara í meginefni
Melda
Til baka í greinar
nýtt
dagskrá
brúðkaup
árshátíðir

Ný virkni: Lifandi dagskrá í Melda

Deildu dagskránni með gestum í rauntíma. Lifandi Núna-merki, mjúk framvinduslá og ítarleg tímalína beint á meldingar- og gestasíðunnni. Prófaðu núna.

3 mín lesturLogi
Lifandi dagskrá fyrir gesti í Melda — gestir fylgjast með tímalínunni í símanum á brúðkaupsdaginn

Þú stendur fyrir brúðkaupi í Hörpu. Meldingarnar eru flestar komnar, og svo byrja Messenger-skilaboðin: „Hvenær byrjar athöfnin?“ „Hvar eigum við að hittast fyrir myndatökuna?“ Allt stóð í boðskortinu — bara á pappír sem er búið að týnast.

Það sem við erum að kynna

Lifandi dagskrá á meldingar- og á gestasíðunni. Þú skrifar dagskrána einu sinni og hún birtist alls staðar þar sem gesturinn gæti leitað að henni og uppfærist í rauntíma.

Það sem gerir hana lifandi er tíminn sjálfur. Þegar einn liður er í gangi birtist „Í gangi“-merki efst á kortinu, áberandi „Núna“ við viðkomandi lið, og framvinduslá neðst sem fyllist eftir því sem líður á dagskrána. Gestir sem opna símann í miðri dagskrá sjá nákvæmlega hvar dagurinn er staddur.

Prófaðu — ýttu á „Sjá alla dagskrá“ til að sjá ítarlegri tímalínu.

Prófaðu

Lifandi dagskrá

Kortið sem gestir sjá. Einn liður er í gangi akkúrat núna — opnaðu dagskrána til að sjá lýsingar, staðsetningar og myndir.

Dagskrá

  • 21:45Brúðkaupsathöfn
  • 22:30Myndataka við Tjörnina
  • 23:30Móttaka á Hörpu
  • 01:00Kvöldverður og ræður
  • 03:45Skera kökuna

Langar þig að prófa með eigin viðburð? Stofnaðu viðburð á 2 mínútum →

Svona býrðu til dagskrána

Einn listi sem þú mótar með því að draga. Einfalt að búa til, endurraða og skipuleggja tímasetningar. Liðirnir eru tengdir svo breytt tímalengd breytir upphafstíma annarra liða svo keðjan haldist samfelld.

Prófaðu

Dagskrágerð

Dragðu lið til að endurraða. Smelltu á tímamerkið til að breyta tíma eða lengd. Skrifaðu neðst og ýttu á Enter til að bæta við. Smelltu á ruslatunnuna til að eyða.

Hvernig virkar þetta

  • „Í gangi“-merki efst á kortinu — þegar einn liður er í gangi.
  • Áberandi „Núna“ við viðkomandi lið — lítil merking við tímann segir hvar dagurinn er staddur.
  • Stutt yfirlit + rík tímalína — yfirlitið sýnir fyrstu fimm liðina; „Sjá alla dagskrá +X“ opnar ítarlegri tímalínu.
  • Lýsingar, staðsetningar, myndir — hver liður fær lýsingu, kortamerki sem opnar Google Maps, og mynd.
  • Þú stjórnar hvenær gestir sjá dagskrána — Í vinnslu (gestir sjá ekki), einungis fyrir skráða gesti eða fyrir alla gesti með hlekk á viðburð.

Hvernig á að byrja

  1. Stofnaðu viðburð í Melda og bættu við gestalista — með innflutningi eða með því að senda boðskort.
  2. Opnaðu Dagskrá og bættu við liðum: tími, heiti, lengd, og valfrjáls lýsing, staðsetning eða mynd.
  3. Veldu sýnileika — bara fyrir skráða gesti, opið öllum, eða drög.
  4. Ekkert meira til að pæla í — á deginum uppfærist yfirlitið sjálfkrafa.

Raunveruleg dæmi

Brúðkaup í Hörpu fyrir 120 gesti. Þú skrifar dagskrána viku fyrir daginn: athöfn í Hallgrímskirkju klukkan 15, myndataka við Tjörnina, móttaka í Norðurljósasalnum, kvöldverður, kakan skorin, dansiball. Um leið og gestir melda sig sjá þeir fulla dagskrá á skráningarsíðunni — með kortamerki sem opnar Google Maps.

Árshátíð 1000 manna fyrirtækis. Móttaka, kvöldverður, skemmtiatriði, dansgólf — tímasetningarnar skipta öllu fyrir starfsfólkið. Þú dregur liðina í röð, stillir lengd, kveikir á opnu sýnileikastigi. Þegar skemmtiatriðið byrjar sér sjá gestir „Núna“-merkið og vita að dansgólfið opnar eftir fjörutíu mínútur.

Stærri myndin

Meldingar, sætaskipan, miðaskönnun og núna lifandi dagskrá — allar upplýsingar og gögn á sama stað.

Lestu um sætaskipanina okkar eða hvernig QR miðaskönnun virkar. Eða stofnaðu viðburð í Melda — það tekur tvær mínútur.

Tilbúin í að byrja?

Búðu til viðburð í Melda á augnabliki.

Búa til viðburð